Fótboltamaðurinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, förðunarfræðingur og einkaþjálfari, hafa fest kaup á parhúsi. Húsið er við Birkihóla og er á Selfossi. Um er að ræða 178,1 fm fasteign sem reist var 2006.
Parið hnaut um hvort annað árið 2021 og ári síðar bað hann hennar á rómantískasta stað veraldar, við sjálfan Eiffelturninn í París. Ári síðar gengu þau í hjónaband hjá sýslumanni. Hjónin eiga tvö börn saman en fyrir átti hann fjögur börn. Garðar varð frægur þegar hann og Ásdís Rán Gunnarsdóttir ísdrottning og forsetaframbjóðandi voru gift en þau fóru hvort í sína áttina 2012.
Nú liggur leið þeirra á Selfoss þar sem þau hafa fest kaup á parhúsi. Húsið er á einni hæð með ágætum garði. Eldhús og stofa tengjast og má finna hvíta sprautulakkaða innréttingu í eldhúsinu. Þar er líka eyja sem rammar inn eldhúsið en úr þessu rými er útgengi út í garð.
Garðar og Fanney greiddu 99.300.000 kr. fyrir húsið sem þau fá afhent 1. júlí í sumar.
Smartland óskar hjónunum til hamingju með húsið!