Æðislegar þriggja herbergja íbúðir í Reykjavík á 60-70 milljónir

Sætar þriggja herbergja íbúðir í höfuðborginni.
Sætar þriggja herbergja íbúðir í höfuðborginni. Samsett mynd/Procura/Trausti fasteignasala/Torg fasteignasala

Á fasteignavef mbl.is kennir ýmissa grasa. Þar er hægt að finna æðislega huggulegar þriggja herbergja íbúðir víðs vegar um höfuðborgina á 60-70 milljónir króna. Sumar hverjar mikið endurnýjaðar og aðrar auglýstar sem frábær fyrstu kaup. Hér eru nokkur dæmi.

Íbúðin við Grettisgötu hefur fengið að halda mikið í upprunann.
Íbúðin við Grettisgötu hefur fengið að halda mikið í upprunann. Ljósmynd/Procura

Grettisgata 84

Kjörin eign fyrir þá sem vilja vera í miðbænum. Byggingarár íbúðar er 1929. Hún er afar björt og með aukna lofthæð, skráð 84,8 fm. Íbúðin er snyrtileg en hefur fengið að halda í upprunaleikann. Gegnheilir plankar á stærstum hluta íbúðarinnar og listar í loftum. Hún skiptist í anddyri með gegnheilu plankaparketi, eldhús, stofu með gegnheilu plankaparketi, borðstofu, sem einnig er hægt að nota sem herbergi, svefnherbergi og baðherbergi. Þvottaaðstaða er í sameign og hefur hver íbúð sína þvottavél. Geymsla í kjallara og er hún skráð 10,1 fm.

Ásett verð: 67.900.000 kr.

Sjá á fasteignavef: Grettisgata 84 - 101, Reykjavík - mbl.is

Jöklafold 39 er á frábærum stað, stutt í skóla, leikskóla, …
Jöklafold 39 er á frábærum stað, stutt í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu o.fl. í Grafarvogi. Ljósmynd/Remax

Jöklafold 39

Falleg íbúð á þriðju hæð, skráð 85,4 fm. Íbúðin er frábærlega staðsett þar sem er stutt í leikskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra þjónustu. Hún skiptist í forstofu, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, geymslu, baðherbergi og auk geymslu í sameign. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er inni á baðherbergi. Stofan er björt og þaðan er útgengi út á suðvestur svalir með ágætis útsýni. Frábær eign í mjög rótgrónu hverfi í Grafarvogi.

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Sjá á fasteignavef: Jöklafold 39, Reykjavík - mbl.is

Eignin við Langholtsveg er að hluta undir súð svo fermetrarnir, …
Eignin við Langholtsveg er að hluta undir súð svo fermetrarnir, sem ekki eru tilgreindir í stærð, nýtast vel. Ljósmynd/Domusnova

Langholtsvegur 174

Falleg 79 fm, þriggja herbergja íbúð með svölum til suðurs í fjórbýli. Sameiginlegur inngangur með miðhæðinni og gengið upp í ris. Íbúðin er að hluta til undir súð og því eru fermetrar sem geta nýst sem ekki eru reiknaðir með í stærð. Eldhús, stofa og borðstofa eru í alrými, harðparket á gólfum og útgengt á suðursvalir. Svefnherbergin eru tvö. Baðherbergi er snyrtilegt og þar er tengi fyrir þvottavél en einnig er sameiginleg þvottaaðstaða í kjallara hússins. Sér geymsla er einnig í kjallara. 

Ásett verð: 65.900.000 kr.

Sjá á fasteignavef: Langholtsvegur 174, Reykjavík - mbl.is

Björt og falleg íbúða við Háaleitisbraut 44 á frábærum stað …
Björt og falleg íbúða við Háaleitisbraut 44 á frábærum stað í Reykjavík. Ljósmynd/Torg fasteignasala

Háaleitisbraut 44

Falleg og mikið endurnýjuð íbúð í fjölbýli á frábærum stað í Reykjavík. Húsið er byggt 1963 en síðustu ár hefur það m.a. verið múrviðgert, málað og skipt um glugga. Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar, skipt um hurðir í sameign og loftstokkar hreinsaðir. Íbúðin er skráð 78 fm og þar af er 5,2 fm geymsla í sameign. Hún er á þriðju hæð og er með nýju baðherbergi, nýjum hurðum, gólfefni og skiptist í forstofu, aðalrými, eldhús, tvö herbergi og baðherbergi. Þvottaaðstaða er í sameign.

Ásett verð: 67.900.000 kr.

Sjá á fasteignavef: Háaleitisbraut 44, Reykjavík - mbl.is

Skyggnisbraut er í nýlegu hverfi í Úlfarsárdal með frábært útivistarsvæði …
Skyggnisbraut er í nýlegu hverfi í Úlfarsárdal með frábært útivistarsvæði allt um kring. Ljósmynd/Trausti fasteignasala

Skyggnisbraut 30

Íbúðin er á 1. hæð í fallegu lyftuhúsi við Skyggnisbraut í Úlfarsárdal. Hún er 92,3 fm og geymsla er staðsett innan íbúðar. Stofan er afar björt, með fallegu útsýni og útgengt er á suðursvalir úr stofu. Útgengt er af svölum út í garð. Parket er á gólfum í forstofu, alrými og í herbergjum. Baðherbergi er flísalagt með sturtu, handklæðaofni og góðri þvottaaðstöðu og skolvaski þar hjá. Úlfarsárdalur er sérlega skemmtilegt hverfi og í mikilli uppbyggingu. Þar er skóli og leikskóli, frábær íþróttaaðstaða, sundlaug og bókasafn.

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Sjá á fasteignavef: Skyggnisbraut 30, Reykjavík - mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda