Menning
9. júní 2025
Þröstur Helgason, ritstjóri Bændablaðsins, er gestur Árna Matthíassonar í Dagmálum í dag. Þröstur á langan og farsælan feril að baki í fjölmiðlum en þar spilar menningarumfjöllun stórt hlutverk. Það kom því mörgum í opna skjöldu þegar hann hann tók við sem ritstjóri Bændablaðsins fyrr á þessu ári en sjálfur segir Þröstur þá ákvörðun hafa verið sér hollt hliðarskref.