
Bernharð Sigursteinn Haraldsson fæddist 1. febrúar 1939. Hann lést 20. maí 2025.
Útför Bernharðs fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 13. júní 2025, kl. 13, en minningarathöfn var haldin 10. júní.
Kær mágur minn Bernharð Haraldsson hefur kvatt jarðlífið og minningarnar um hlýjan, kærleiksríkan mann hrannast upp.
Hann kom inn í fjölskylduna þegar ég var unglingur og small inn í hana eins og hann væri fæddur fjölskyldumeðlimur. Faðir minn, sem var mannþekkjari, hafði þá kenningu að fyrstu kynni af fólki sýndu „hvern mann það hefði að geyma“. Brátt og alla tíð síðan var mjög kært með þeim tengdafeðgum. Eitt sinn sótti Benni foreldra mína frá Hjalla í Kjós til Akureyrar og skilaði þeim heim nokkrum dögum seinna. Fjórum sinnum keyrði hann marga klukkutíma fram og til baka en Benna þótti
...