Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Horfur í heimsbúskapnum versna samkvæmt nýjustu hagspá Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Fjögur meginatriði valda þessari þróun: auknar viðskiptahindranir, hærri fjármögnunarkostnaður, minni væntingar neytenda og fyrirtækja, og veruleg óvissa í efnahagsmálum. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur á heimsvísu lækki úr 3,3% árið 2024 í 2,9% árin 2025 og 2026. Í Bandaríkjunum er spáð mestri lækkun hagvaxtar, úr 2,8% í 1,6% milli áranna 2024 og 2025. Á evrusvæðinu er búist við 1% hagvexti árið 2025. Samdráttur blasir einnig við í Kína.

Í slíkri óvissu er brýnt að ríkisstjórnin sýni styrk og forystu með því að skapa hagfelld skilyrði fyrir verðmætasköpun, sem stuðla að auknum hagvexti og minni óvissu. Einnig er mikilvægt að stjórnvöld sýni gott fordæmi á vinnumarkaði og að laun ráðherra og kjörinna fulltrúa fylgi þróun almenns vinnumarkaðar. Því miður virðist ríkisstjórnin gera hið gagnstæða: hún eykur

...

Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir