Fréttir Föstudagur, 13. júní 2025

Kærður Ólafur Þór Hauksson, áður sérstakur saksóknari eftir hrun.

Héraðssaksóknari kærður til lögreglu

Jón Óttar Ólafsson hefur kært Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara til lögreglu fyrir rangar sakargiftir um trúnaðarbrot í máli árið 2012, en þá gegndi Ólafur embætti sérstaks saksóknara. Ríkissaksóknari felldi málið niður snemma árs 2013 Meira

Talið skerða eignarréttindi sjóðfélaga

Gagnrýna örorkufrumvarpið • Gæti kallað á skaðabætur Meira

Fríhöfn Deilt um undanþágur frá lögbundnum takmörkunum á áfengissölu.

Furðar sig á leyfi Heinemann

„Er það ekki svolítið skrítið ef allir eiga að vera jafnir fyrir lögum að fyrirtækið Heinemann sé ekki eins jafnt og við heldur jafnara?“ segir Arnar Sigurðsson, áfengiskaupmaður í Sante Meira

Guðmundur Björgvin Helgason

Ógagnsæi í meðferð ríkisstyrkja

Ríkisendurskoðandi segir tímabært að endurskoða lög um starfsemi stjórnmálasamtaka, sem fjalla meðal annars um opinbera styrki sem stjórnmálaflokkar fá frá ríki og sveitarfélögum. Hann hafi ekki eftirlit með óskyldum aðilum sem stjórnmálasamtök… Meira

Loftrýmisgæsla Tékkneski flugherinn kom til landsins undir lok maímánaðar til að sinna loftrýmisgæslu. Hann verður áfram næstu vikurnar. Hér má sjá þotur finnska flughersins á æfingu á öryggissvæðinu í Keflavík.

Öðlast mikilvæga reynslu á Íslandi

Varnarsamstarf við Bandaríkin haldi áfram að styrkjast Meira

Héraðsdómur Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari er hér sveipaður skikkju sérstaks saksóknara við flutning Aurum-málsins í upphafi 2013.

Rangar sakargiftir og skjalafals

Jón Óttar kærir héraðssaksóknara til lögreglu • Segir saksóknara hafa kært sig gegn betri vitund • Leggur fram gögn um vitneskju embættisins um störf fyrir Milestone • Málið fyrnist ekki fyrr en 2027 Meira

Hækkun Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur hækkað um 92% síðasta árið.

Hressilegar verðhækkanir á kaffi

Verð á kaffi hefur hækkað hressilega síðustu vikur. Þær hækkanir koma ofan á tugprósenta verðhækkanir á einstaka vörutegundum frá áramótum. Samkvæmt upplýsingum frá verðlagseftirliti ASÍ nema verðhækkanir allt að 15% Meira

Í þingsal Frumvarpið er núna til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd eftir 1. umræðu. Frestur til að skila inn umsögnum rann út 11. júní.

„Getur það leitt til skaðabótaskyldu“

Segja örorkufrumvarpið skerða eignarréttindi sjóðfélaga Meira

Bifreið Skemmdur bíll án bílnúmers utan vegar í Borgarfirði.

Skemmdir bílar skildir eftir

Algengt er að koma auga á ónýta bíla í vegköntum en sumir standa jafnvel í marga mánuði án afskipta. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir það mjög algengt að bílar séu skildir eftir í vegkanti eftir að … Meira

Sveitafólk Þorsteinn og Steinunn Lilja hér við dráttarvélina með dætrunum Heiðdísi Hönnu og Svövu Björt. Sonurinn Loftur var fjarverandi.

Traktor fyrir Haukholtafólk

„Stuðningurinn kemur sér vel. Okkur var mikilvægt að fá nýjan traktor því bústörfin bíða ekki. Lífið heldur áfram hvað sem á dynur,“ segir Þorsteinn Loftsson í Haukholtum í Hrunamannahreppi Meira

Samið við sjúkraliða og LSS

Erfiðlega gengur í viðræðum við Alcoa • 15 óleystar deilur hjá ríkissáttasemjara Meira

Jón Ingi Cæsarsson

Jón Ingi Cæsarsson, fv. formaður Póstmannafélags Íslands, lést á hjartadeild Landspítalans 7. júní síðastliðinn, 72 ára að aldri. Jón Ingi fæddist 13. desember 1952 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þórdís Eiríksdóttir og Kristvin Kristinsson en hann … Meira

Hátíð Tjöldin eru komin upp og menn höggva tré eftir gömlum vinnubrögðum. Víðistaðakirkja er hér í baksýn.

Hátíðin er í anda stórbrotinna tíma

Víkingar á Víðistaðatúni • Bardagamenning í Hafnarfirði Meira

Gáfu steypuleyfi á grundvelli yfirlýsinga hönnuðar

Burðarþolshönnuður setti skilyrði um að farið yrði eftir útboðsgögnum Meira

Vatnajökull Hamrar Grímsfjalls við Grímsvötn. Á Grímsfjalli eru skálar Jöklarannsóknarfélags Íslands. Heklu ber við himin í fjarska.

Jöklar bráðnuðu hraðar í maí

Hitabylgjan sem gekk yfir Ísland í maí hafði mikil áhrif á jökla landsins, að sögn Andra Gunnarssonar, formanns Jöklarannsóknarfélags Íslands. Hann segir tímabilið hafa verið með því áhrifamesta sem sést hafi á þessum árstíma, en þó ekki án fordæma Meira

Kjötvinnsla Umboðsmaður Alþingis óskar skýringa á breyttri umsögn.

Reykjavíkurborg krafin svara

Umsögn um kjötvinnslu vekur spurningar hjá umboðsmanni Meira

Ahmedabad Björgunarfólk sést hér að störfum við leit í braki farþegavélarinnar sem hrapaði í gærmorgun.

Einn lifði af hörmulegt flugslys

Farþegaþota Air India hrapaði skömmu eftir flugtak í borginni Ahmedabad • Var á leið til Lundúna • Fyrsta flugslys Boeing 787-vélar • Alls voru 242 um borð • 169 Indverjar og 53 Bretar meðal farþega Meira

Teheran Íransstjórn og kjarnorkumálastofnunin héldu viðræður í apríl.

IAEA sakar Íran um óhlýðni

Klerkastjórnin hótar að auðga meira úran • Óvissa um kjarnorkuviðræður Írans og Bandaríkjanna • Ísraelar sagðir undirbúa árás • Sendiráðsmenn kallaðir heim Meira

Svefn Rannsóknir á svefni einstaklinga höfðu verið af skornum skammti fyrir árið 2020 en þá var Svefnbylting HR kynnt til sögunnar.

Ísland fremst í flokki í svefnrannsóknum

Ísland er nú í fararbroddi alþjóðlegra svefnrannsókna en mikil breyting hefur orðið þar á á síðustu árum. Rannsóknir á svefni voru af skornum skammti fyrir árið 2020. Þá var stofnað innan veggja Háskólans í Reykjavík Svefnsetrið sem leiddi af sér rannsóknarverkefnið Svefnbyltinguna Meira

Tónlist „Eðlilega sé ég ekki nótur en í tónlistarskóla lærði ég að spila eftir eyra,“ segir Theódor Helgi við hljóðfærið.

Lærist að lifa samkvæmt aðstæðunum

Theódór dúxaði blindur, spilar á píanó og stefnir í HÍ Meira