Þessar miðsumarsrækjur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu baguette eða brauðsneiðum, eru fullkomnar til að bjóða upp á í forrétt og líka flottur réttur til að deila.
Það sem gerir þennan rétt svo góðan er ferska dillið sem ég fæ frá Vaxa. Bragðið og ferskleikinn gerir allt betra, fátt er betra en sjávarfang og ferskt dill. Ég býð gjarnan upp sjávarfang í forrétt þegar góða gesti ber að garði og þegar ég vil gera sérstaktlega vel við mig og mína. Svo er líka ljúffengt að bera þennan rétt með nýbökuðu súrdeigs-baguette en það hef ég fengið í Bernhöftsbakaríi.
Þetta súrdeigs-baguetta steinliggur með þessum rétti.
mbl.is/Sjöfn
Best er að gera sósuna fyrst og kæla síðan á meðan rækjurnar eru eldaðar.
Miðsumarsrækjur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu baguette.
mbl.is/Sjöfn
Miðsumarsrækjur í kremaðri sósu með fersku dilli og ristuðu brauði
Rækjur
- 400 g soðnar rækjur
- 1 msk. ólífuolía eða smjör
- Salt og svartur pipar eftir smekk
- 1 hvítlauksgeiri, smátt saxaður eða marinn
Aðferð:
- Hitið olíu eða smjör á pönnu við meðalhita.
- Bætið við rækjum og hvítlauk, saltið og piprið eftir smekk.
- Steikið í 2–3 mínútur eða þar til rækjurnar eru orðnar heitar og létt gylltar, alls ekki ofsteikja þær.
Kremuð dillsósa
- 1/2 dl sýrður rjómi eða jógúrt
- 2 msk. majónes
- 1 msk. sítrónusafi
- 1 tsk. rifinn sítrónubörkur
- 2 msk. ferskt dill frá Vaxa, smátt saxað
- Salt og svartur pipar eftir smekk
Aðferð:
- Blandið saman í skál, sýrðum rjóma eða jógúrt, majónesi, sítrónusafa og sítrónubörk, söxuðu dilli, salti og pipar eftir smekk.
- Kælið í ísskáp á meðan rækjurnar eru eldaðar.
Meðlæti og til skrauts:
- Sítrónusneiðar
- Ferskt dill frá Vaxa
- Súrdeigs-baguette eða ristað brauð að eigin vali
Samsetning:
- Smyrjið ristaðar baguetta-sneiðar eða venjulegar franskbrauðsneiðar með smjöri eftir smekk.
- Ristið á pönnu eða í ofni þar til sneiðarnar eru gullinbrúnar og stökkar.
- Skerðu í smærri bita ef þið eruð með heilar stórar brauðsneiðar, þarf ekki ef þið eruð með baguette.
- Smyrjið kremuðu sósunni á fat eða fallegan disk.
- Leggið rækjurnar ofan á og skreytið með sítrónusneiðum og fersku dilli.
- Raðaðu ristuðu baguettasneiðunum eða litlu brauðsneiðunum í kring eða setjið í skál til hliðar.
- Berið fram og njótið með ykkar bestu.