Bjarki Snær Þorsteinsson matreiðslumaður á Fröken Reykjavík hefur ávallt gaman af því að grilla og gefur hér uppskrift að dásamlegri nautasteik og meðlæti sem upplagt er að prófa við næsta tækifæri. Það má segja að þetta sé hans fullkomna grillmáltíð þessa dagana.
Bjarki er landsliðskokkur en þessa dagana er hann í fríi frá landsliðsæfingum þar sem hann á von á barni númer tvö og ætlar að gefa sér tíma til að hlúa að fjölskyldunni þegar það mætir í heiminn.
„Ég vil ekki vera að taka pláss frá öðrum sem hefur meiri tíma og tök til að taka þátt á meðan það eru miklar annir á mínu heimili og vona svo sannarlega að liðinu gangi vel í þeim verkefnum sem fram undan er. Ég óska liðinu alls hins besta og hlakka til að sjá þau fá gullið á heimsmeistaramótinu í matreiðslu á næsta ári,“ segir Bjarki með bros á vör.
„Á meðan verð ég að vinna á veitingastaðnum Fröken Reykjavík hjá Snædísi Jónsdóttur, þjálfara íslenska kokkalandsliðsins, sem eru mikil forréttindi,“ bætir Bjarki við.
Á sumrin er aldrei langt í grillið hjá Bjarka. „Ég hef alltaf gaman að því að grilla mat hvort sem það er kjöt, meðlæti eða annað. Ég gríp í gasgrillið þegar ég hef stuttan tíma en grilla hiklaust á kolagrilli þegar ég er að nostra við matinn og hef meiri tíma þar sem það gefur talsvert meira bragð af því sem er grillað og auk þess er mun skemmtilegra að vinna með kol heldur en gasið.“
Mér finnst meðlæti með steik líka skipta máli þó að hún geti verið góð ein og sér. Mér finnst góð sósa og meðlætið oft lyfta réttinum upp á hærra plan. Einn af mínum uppáhaldsgrillréttum þessa dagana er nautaskirt- steik frá Umi ásamt grilluðum eryngisveppum, vorlauk, bökuðum smælki-kartöflum og epla- og kryddjurtadressingu sem er svona öðruvísi útgáfa af chimichurri. Ómótstæðilega gott saman og alls ekki flókið að útbúa. Mig langar að deila þessari uppskrift með lesendum.“
Nautaskirt- steik frá Umi borin fram grilluðum eryngisveppum, vorlauk, bökuðum smælki-kartöflum og epla- og kryddjurtadressingu
Fyrir 2
Nautaskirt-steik
Aðferð:
Eryngi, sveppir og vorlaukur
Aðferð:
Smælki-kartöflur
Aðferð:
Epla- og kryddjurtadressing – öðruvísi chimichurri
Aðferð: