Nakin morgunrútína með Betu Reynis

Elísabet Reynisdóttir er sannkallaður gleðigjafi og kann að njóta. Hún …
Elísabet Reynisdóttir er sannkallaður gleðigjafi og kann að njóta. Hún drekkur fyrsta kaffibollann nakin. mbl.is/Eyþór

Þegar undirrituð heimsótti Elísabetu Reynisdóttur næringafræðing, sem alla jafna er kölluð Beta Reynis, og bað hana að segja lesendum Matarvefs mbl.is frá skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar og sér í lagi hvernig hún byrjar daginn ljóstraði hún upp leyndarmálinu sínu um fyrsta kaffibollann.

„Það eru litlu hlutirnir sem skipta máli. Stundum er það fyrsti sopinn úr kaffibollanum og aðrir dagar byrja bara ekki fyrr en salsatónlistin glymur úr hátölurunum,“ segir Beta með bros á vör.

Beta deildi með mér innsýn í hennar óhefðbundnu en nærandi morgunrútínu og því sem er fram undan í lífi og starfi.

Drekkur fyrsta kaffibollann nakin

„Það kom mér sjálfri á óvart hvað morgunvenjur mínar eru rútíneraðar – þar til þetta viðtal opnaði augun mín. Ég sem hélt að ég væri ekkert sérstaklega skipulögð týpa,“ segir Beta sposk á svip.

„Kvöldið áður er ég búin að útbúa expressókönnuna og stilla öllu upp. Um leið og ég opna augun, kveiki ég á tónlist og fer beint í rútínuna:

„Kveiki undir kaffikönnunni, stekk inn á bað, pissa og svo næ ég mér í fyrsta bollann, skunda aftur inn á bað og tek nokkra sopa áður en ég stíg undir sturtuna. Passa að stilla tónlistina, stundum eru það hugleiðslutónar, stundum salsa. Það fer alveg eftir skapinu, orkustiginu og hvað er í gangi í lífinu.

Fyrsti kaffibollinn er heilagur. Ég drekk hann nakin, áður en dagurinn hefur fengið nokkra mynd eða skipulag. Síðan, þegar ég er komin í föt og allt er farið af stað, kemur annar bolli, með kollageni og smá rjóma eða mjólk. Sá bolli fylgir mér oft í vinnuna eða á fundi. Þetta eru mín tvö helgu augnablik,“ segir Beta með bros á vör.

„Skrýtnar“ venjur – sem gera mér gott

Aðspurð segist Beta halda í nokkrar venjur sem hún geti engan veginn sleppt. „Ég reyni að byrja daginn með 1–2 glösum af vatni og stundum smá eplaediki áður en helgiathöfnin byrjar þótt eplaedikið passi betur fyrir mig að taka inn fyrir máltíðir. Ég elska ískalda mysu og já, ég á það líka til að eiga súran hval í ísskápnum.

Dóttir mín spurði mig eitt sinn hvort ég væri 100 ára, og ég skildi hana vel. En þetta er partur af því sem hentar líkama mínum og snakk getur verið yfir 100 ára gömul hugmynd. Ég segi bara að þessar venjur muni koma mér yfir 100 ára aldurinn,“ segir Beta og hlær.

„Ég leyfi mér líka suma morgna með Eyþóri, vinnufélaga mínum, þegar við byrjum daginn saman á kaffihúsi og að fá mér ristað brauð og kaffi með spjallinu. Það er hluti af jafnvæginu: heilsa sem rúmar bæði festu og lífsgleði í fallegu jafnvægi.“

Á öllum vígstöðum – í næringu, sköpun og lífinu

Miklar annir eru hjá Betu þar sem hún er að undirbúa spennandi verkefni sem á örugglega eftir að vekja mikla athygli.

„Ég er þessa dagana djúpt sokkin í nýsköpunarverkefni með Eyþóri, þar sem við erum að þróa kollagenmunnpúða sem heilsusamlegan valkost. Við erum að fínpússa endanlega vöruþróun, við erum spennt og full tilhlökkunar að taka næstu skref. 

Mitt aðalstarf er áhugamálið mitt og það er að vinna sem næringarfræðingur. Ég býð upp á ráðgjöf og netnámskeið, bæði stutt og löng, byggð á blóðsykursjöfnu mataræði sem ég þróaði árið 2016. Ég er stolt af þeirri vinnu og trúi á áhrifamátt næringar í réttum hlutföllum og samsetningu. 

Ég hef verið að bæta við mig ráðgjöf og fyrirlestrum fyrir vinnustaði. Meistaraverkefnið mitt fjallaði um mannrækt á vinnustað og þessa dagana er ég að halda fyrirlestra um heilsu- og vinnustaðahvatningu,“ segir Beta full stolts.

Lífið er í smáatriðunum

Þegar Beta hugar að heilsunni er það ekki bara næringin sem hún spáir í. „Ég er líka að dýpka eigin þekkingu, á tengslum næringarefna og andlegrar heilsu, áhrifum matar á líðan, orku og jafnvægi. Því næring er ekki bara eldsneyti – hún er boðefni, hún segir líkamanum hvernig honum á að líða.

Ég er nýbúin að klára NærVitund sem er námskeið sem ég hélt með Maríönnu Pálsdóttur, eiganda UMI-stúdíós á Seltjarnarnesi. Og vá, hvað þetta var falleg og dýrmæt upplifun. Við tókum heilsuna föstum tökum en í mildi, blönduðum saman jóga, næringu og djúpslökun og bjóðum fólki þannig að mæta sjálfu sér af virðingu og ró. Þetta er svona námskeið þar sem maður andar aðeins dýpra og sleppir takinu á því gamla. Við ætlum að endurtaka leikinn í haust og við erum byrjaðar að bóka á það námskeið enda takmarkaður fjöldi,“ bætir Beta við.

„Með bollanum og sjálfri mér

Eitt af því sem Beta hefur lært í lífinu er að kunna að njóta og muna að njóta.

„Það mikilvægasta í þessu öllu er að njóta. Þess vegna byrja ég hvern dag á mínum heilögu kaffibollum, þann fyrsta nakin með tónlist, næsta bolla fæ ég mér klædd í hlutverk dagsins. Þetta eru mín augnablik með sjálfri mér, mín hugleiðsla. Þau halda mér jarðbundinni í óreiðu dagsins og minna mig á hvað raunverulega skiptir máli.

Heilsa, matur og sjálfsþekking, þetta verða áfram mitt leiðarljós. Hvort sem ég er á vígstöðunum heima, í vinnunni, eða djúpt í huganum að hugsa um allt og ekkert,“ segir Beta að lokum sátt við lífið og tilveruna.

 

Kaffibolli númer tvö er yfirleitt með kollageni og smá rjóma …
Kaffibolli númer tvö er yfirleitt með kollageni og smá rjóma eða mjólk. mbl.is/Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert