Fullkomin kaka fyrir þá sem elska epli og karamellu

Valgerður Gréta Gröndal, alla jafna kölluð Valla, kann að gleðja …
Valgerður Gréta Gröndal, alla jafna kölluð Valla, kann að gleðja sitt fólk með ljúffengum kökum og bakkelsi. mbl.is/Karítas

Valgerður Gréta Göndal, betur þekkt undir gælunafninu Valla, er mikill sælkeri. Hún er iðin við að þróa nýjar uppskriftir að ómótstæðilegum kökum og bakkelsi sem gott er að njóta í helgarfríum sem þessum.

Eitt af því nýjasta sem Valla hefur gert er þessi dásamlega eplaterta með karamellukremi og kanileplum. Hún er bragðgóð, fögur og heimilisleg í senn.

Hún samanstendur af þremur mjúkum botnum sem innihalda gnótt smátt skorrinna Venosta-epla auk karamellu og kanils. Á milli laganna er vel þeytt karamellukrem og karmellíseruð kanilepli. Tertan er svo toppuð með enn meiru af kanileplum og heimagerðri karamellusósu.

Ekta sumarbústaðarkaka

Þetta er kaka sem á eftir að slá í gegn sem helgarkaka með góðu kaffi og ekta sumarbústaðarkaka. Hún er einföld í samsetningu, en útkoman er bæði falleg og ljúffeng. Hún bragðast best þegar hún hefur fengið að standa aðeins svo eplin og karamellan blandist vel við kremið.

Syndsamlega góð eplaterta með karamellukremi og kanileplum með sumarívafi
Syndsamlega góð eplaterta með karamellukremi og kanileplum með sumarívafi Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal

Eplaterta með karamellukremi og kanileplum

  • 3 rauð lífræn Venosta-epli, skorin mjög smátt (375 g)
  • 2 msk. púðursykur
  • 2 tsk. kanill
  • 3 bollar hveiti
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 1 ¼ tsk. salt
  • 2 ½ tsk. kanill
  • 1 ½ bolli jurtaolía
  • ¾ bolli púðursykur
  • 1 ½ bolli sykur
  • 4 stór egg
  • 2 tsk. vanilludropar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að saxa eplin, setjið í skál ásamt púðursykri og kanil og setjið til hliðar.
  2. Hitið ofninn í 160°C blástur.
  3. Smyrjið þrjú 20-22 cm lausbotna kökuform.
  4. Blandið þurrefnum saman í skál og setjið til hliðar.
  5. Setjið olíu og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið í 2-3 mínútur, skafið niður á milli.
  6. Bætið 1 eggi við og þegar það er samlagað setjið þá næsta egg út í.
  7. Endurtakið þar til öll eggin eru komin út í, þeytið á meðalhraða í 2-3 mínútur eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
  8. Sigtið þurrefnin út í og blandið saman við með sleikju.
  9. Setjið kanileplin út í deigið og blandið einnig saman við með sleikju.
  10. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og bakið í 40-50 mínútur, tíminn fer eftir ofnum, en botnarnir eru tilbúnir þegar prjónn sem stungið er í miðjuna kemur hreinn upp.
  11. Á meðan kakan bakast er karamellan útbúin.
  12. Kælið botnana alveg.
  13. Á meðan útbúið þið kremið og kanileplin, sjá uppskriftir fyrir neðan.

Karamella

  • 200 g sykur
  • 90 g smjör
  • 120 ml rjómi
  • Saltklípa

Aðferði:

  1. Setjið sykurinn í pott og bræðið.
  2. Þegar hann er orðinn djúp karamellubrúnn (varist að brenna sykurinn þó) er smjörinu hrært snögglega saman við.
  3. Þegar smjörið er samlagað sykrinum er rjómanum hellt saman við og pískað hratt þar til karamellan er komin saman.
  4. Setjið saltið út í og hellið strax í krukkur.

Karamellukrem

  • 250 g smjör við stofuhita
  • 2 bollar flórsykur
  • ½ bolli karamellusósa
  • 1 tsk. vanilludropar

Aðferði:

  1. Þeytið smjörið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið mjúkt og hvítnað vel.
  2. Bætið þá flórsykri, karamellunni og vanilludropum saman við og þeytið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið ljóst og loftmikið.

Kanilepli

  1. Saxið eplin, bræðið smjör á pönnu og setjið eplin út á.
  2. Bætið við púðursykri og kanil og steikið eplin þar til þau hafa mýkst vel og safinn gufað upp að mestu.
  3. Kælið.

Samsetning:

  1. Setjið botn á kökudisk og smyrjið lagi af kremi ofan á.
  2. Leyfið kreminu að ná aðeins hærra við brúnirnar til að mynda pláss fyrir eplin.
  3. Dreifið 1/3 af kanileplunum yfir botninn og setjið næsta botn ofan á.
  4.  Endurtakið og setjið þá síðasta botninn ofan á.
  5. Smyrjið restinni af kreminu ofan á kökuna og setjið restina af kanileplunum ofan á og dreifið karamellu yfir eplin.
  6. Berið fram á fallega dekkað borð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert