„Piparpallettur landsins verða ekki fyrir vonbrigðum“

Birna María Másdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus er sannfærð um að …
Birna María Másdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus er sannfærð um að piparpallettur landsins verði ekki fyrir vonbrigðum með Piparfyllta Trompið nýja. Samsett mynd

Nói Síríus kynnir þrjár nýjungar í vöruúrvali sínu. Nýjungarnar fela í sér bæði útfærslu á klassíkri samsetningu sem landsmenn þekkja vel og fersk ný brögð því fram kemur í tilkynningu frá Nóa og Síríus.

„Þetta eru nýjungar sem gleðja bragðlaukana og koma með ferskan blæ í vöruúrvalið,“ segir Birna María Másdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus. „Við leggjum mikla áherslu á að hlusta á neytendur okkar og þróa vörur sem standast bæði væntingar í gæðum og bragði. Þessar vörur eru dæmi um það.“

Piparfyllt Tromp - snúningur á íslenskri klassík

Tromp er ein af elstu og vinsælustu vörum Nóa Síríus og hefur í gegnum tíðina öðlast sess sem sannkölluð sælgætisklassík á Íslandi. Nú fær sú hefð nýjan búning og eru komnir Tromp-bitar með piparfyllingu, sem sameinar mýktina og fyllinguna sem neytendur þekkja við hið geysivinsæla piparlakkrísbragð. „Piparpallettur landsins verða ekki fyrir vonbrigðum,” segir Birna með bros á vör.

Piparfylltur Tromp-bitarnir eiga eftir gleðja piparaðdáendur.
Piparfylltur Tromp-bitarnir eiga eftir gleðja piparaðdáendur. Ljósmynd/Aðsend

Tromp-bitar með piparfyllingu verða aðeins fáanlegir í takmörkuðu upplagi og því hvetur Nói Síríus fólk til að næla sér í nýja Trompið á meðan birgðir endast.

Ljósmynd/Aðsend

Trítlarnir stækka fjölskylduna

Samhliða piparfyllta Trompinu kynnir Nói Síríus einnig tvær nýjar útgáfur af Trítlum, sem hafa á undanförnum árum fest sig í sessi sem litríkur og líflegur hluti af sælgætishefðum landsmanna. Nýju tegundirnar eru Súpersúrir Trítlar og Suðrænir ávaxtatrítlar.

Súpersúrir Trítlar og Suðrænir Trítlar eru ný vara hjá Nóa …
Súpersúrir Trítlar og Suðrænir Trítlar eru ný vara hjá Nóa og Síríusi. Ljósmynd/Aðsend

Báðar nýju Trítlavörurnar eru unnar úr náttúrulegum litarefnum og bragðefnum. Súpersúru Trítlarnir eru eins og nafnið gefur til kynna með súru bragði og léttri frauðkenndri áferð. Suðrænu Trítlarnir eru á hinn bóginn mildari og sætari á bragðið.

Ný Trítlafjölskylda.
Ný Trítlafjölskylda. Ljósmynd/Aðsend

„Báðar tegundirnar eru mjög ljúffengar þó að þær séu mjög ólíkar, en þetta er mjög góð viðbót í Trítla-fjölskylduna sem eru nú orðnar átta,“ segir Birna enn fremur.

„Nýju Trítlarnir eru ekki bara tímabundnir gestir í hillunum heldur eru komnir til að vera,“ segir Birna María og bætir við: „Þessar tvær nýju tegundir koma til með að verða hluti af varanlegu vöruvali okkar.”

Svona líta nýju pokarnir út.
Svona líta nýju pokarnir út. Ljósmynd/Aðsend

Nýju vörurnar – Piparfyllt Tromp, Súpersúrir Trítlar og Suðrænir Trítlar eru nú þegar komnar í verslanir um allt land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert