Stórbrotinn veitingastaður með útsýni yfir Miðjarðarhafið

Veitingastaðurinn Le Plongeoir stendur á sögufrægum klettum við innsiglinguna að …
Veitingastaðurinn Le Plongeoir stendur á sögufrægum klettum við innsiglinguna að höfninni í Nice í suður Frakklandi. Stórbrotið útsýni að njóta. Samsett mynd

Veitingastaðurinn Le Plongeoir stendur á sögufrægum klettum við innsiglinguna að höfninni í Nice í suður Frakklandi. Veitingastaðurinn leitast við að bjóða gestum upp á einstaka matarupplifun þar sem saga, byggingarlist og matargerð mætast á miðri leið við Miðjarðarhafið.

Þarna gátu veitingagestir gætt sér á mat og drykk nokkrum …
Þarna gátu veitingagestir gætt sér á mat og drykk nokkrum metrum yfir sjávarmáli á 19. öld og geta enn í dag. Samsett mynd

Nafnið „Le Plongeoir“ stendur einfaldlega fyrir „stökkpallurinn“, og vísar það til uppruna staðarins sem er reistur á kletti og gömlum stökkpalli sem á sér ríka sögu en þar geta gestir upplifað hið stórbrotna útsýni sem staðsetningin býður upp á.

Franska Rivíeran sem liggur við suðurströnd Frakklands meðfram Miðjarðarhafinu býður upp á allt það besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Á þessum slóðum finnur þú stórfenglegar strandir, frábæran mat og eðalvín sem gleðja alla bragðlauka.

Nafnið „Le Plongeoir“ stendur fyrir „stökkpallurinn“, og vísar það til …
Nafnið „Le Plongeoir“ stendur fyrir „stökkpallurinn“, og vísar það til uppruna staðarins sem er reistur á kletti og gömlum stökkpalli sem á sér ríka sögu. Samsett mynd

Tilurð staðarins nær aftur til 19. aldar

Saga staðarins er áhugaverð og nær aftur til loka 19. aldar þegar glæsilegur fiskibátur var festur kyrfilega ofan á klett við innsiglingu hafnarinnar og var nýttur sem veitingastaður. Þarna gátu veitingagestir gætt sér á mat og drykk nokkrum metrum yfir sjávarmáli.

Báturinn var tengdur við fallegt lystihús ásamt göngubrú. Það var síðan árið 1941, eftir að fiskibáturinn hafði skemmst, sem arkitektinn René Livieri hannaði nýjan veitingastað með steyptum stökkpöllum og jafnframt strandveitingastað í stað lystihússins á klettunum.

Miðjarðarhafsmatur með nútímalegu ívafi

Matseld og matseðill Le Plongeoir byggir á fersku hráefni sem kemur frá svæðinu og sameinar bæði hefðir og nútímalegt bragð. Réttirnir staðarins eru innblásnir af staðbundinni matarmenningu Miðjarðarhafsins sem og árstíðum.

Réttirnir staðarins eru innblásnir af staðbundinni matarmenningu Miðjarðarhafsins.
Réttirnir staðarins eru innblásnir af staðbundinni matarmenningu Miðjarðarhafsins. Samsett mynd

Ef þú ert að leita að rómantískri máltíð, sérstöku tilefni eða einfaldlega eftirminnilegri matarupplifun með stórbrotnu útsýni, þá er Le Plongeoir sannkölluð perla við frönsku Rivieruna sem vert er að skoða.

Sjá myndband af staðnum hér:

Hér má sjá heimasíðu veitingastaðarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert