Mikið verður um að vera á veitingastaðnum Jómfrúinni við Lækjargötu í sumar og veitingamenn staðarins líta björtum augum á komandi tíma.
„Sumarið hefur byrjað frábærlega, miklu betur en í fyrra og undanfarin ár. Við bindum vonir við að þetta haldi áfram,“ segir Jakob E. Jakobsson, veitingamaður á Jómfrúnni.
Aðeins er rúm vika í að tónleikaröðin Sumarjazz hefji göngu sína á Jómfrúnni við Lækjargötu. Þetta verður 30. sumarið í röð sem djassinn dunar á Jómfrúartorginu á laugardögum og fara fyrstu tónleikarnir fram laugardaginn 7. júní. Sem fyrr er tónlistarmaðurinn Sigurður Flosason listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, en hann hefur sinnt því starfi næstum frá upphafi.
Hjá mörgum er það fyrir löngu orðið fastur liður á sumrin að tylla sér niður á Jómfrúartorginu á laugardögum og njóta góðra veitinga og frábærrar tónlistar. Veðrið spilar stóran þátt í tónleikaupplifuninni; á góðviðrisdögum er Sumarjazzinn hreinlega himneskur. Jakob segir að þegar hitabylgja gekk yfir landið fyrr í mánuðinum hafi margir gestir spurt hvort ekki væri ráð að slá upp tónleikum. „Nei, við stökkvum ekki til þótt það komi sólarglæta í maí. Ég spurði fólk á móti hvort það héldi jól ef það snjóaði í október. Við breytum ekki þessari hefð.“
Jakob segir að aðsókn á tónleikana sýni að margir kunni að meta þennan menningarviðburð. Tónleikana sæki bæði íbúar á höfuðborgarsvæðinu og ferðamenn í bland. „Við erum stolt af því að bjóða upp á ókeypis djasstónleika 12-13 sinnum á ári.“
Á fyrstu tónleikunum treður Silva Þórðardóttir upp og mun leika bæði standarda og íslensk dægurlög. „Það eru svo tveir hápunktar í sumar. Hinn 21. júní ætlum við að brjóta prógrammið upp og flytja djassinn til Ísafjarðar. Þar tökum við þátt í tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Fólk sem er mjög djassþyrst þennan dag verður bara að labba út í Vatnsmýri og taka eitt stykki flugvél til Ísafjarðar,“ segir Jakob.
Hinn hápunkturinn er að hans sögn 9. ágúst þegar Reykjavík Pride fer fram. „Í ljósi sögu stofnenda Jómfrúarinnar, pabbanna minna Jakobs og Guðmundar, er Reykjavík Pride viðburður sem við munum alltaf standa með. Friðrik Ómar ætlar að leiða þaulreynda hljómsveit í dagskrá sem tengist hinsegin höfundum. Allir þarna eiga einhverja taug í hinsegin samfélaginu. Við munum tryllast þennan dag.“
Jakob segir að dagskráin á Sumarjazzinum sé raunar svo glæsileg að hann furði sig á að ríkismiðillinn hafi ekki gert henni almennilega skil. Í löndunum í kringum okkur sé reglulega sýnt frá sambærilegum viðburðum. „Maður bíður bara eftir að RÚV mæti. Auðvitað ætti að taka upp 2-3 tónleika og sjónvarpa þeim.“