Tveir íslenskir matreiðslumeistarar hlutu Cordon Rouge-orður í Svíþjóð

Árni Þór Arnórsson og Jóhann Sveinsson fengu Cordon Rouge-orður fyrir …
Árni Þór Arnórsson og Jóhann Sveinsson fengu Cordon Rouge-orður fyrir framúrskarandi framlag til fagmennsku og þróunar í matreiðslu á Norðurlöndum. Ljósmynd/Aðsend

Þing Norðurlandasambands matreiðslumeistara (NKF) fór fram á dögunum í Rönnäng í Svíþjóð. Þetta var í fyrsta sinn í sögu sambandsins sem engin matreiðslukeppni fór fram á þinginu, en slíkar keppnir hafa hingað til verið fastur liður í dagskrá. Gestir tóku breytingunni vel og lýstu ánægju með að aukinn tími hefði skapast til samveru, umræðna og faglegs lærdóms.

Á hátíðarkvöldverði Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara (Nordic Chefs Association), sem haldinn var á Tjörns Havspensionat í Rönnäng í Svíþjóð um nýliðna helgi, voru tveir íslenskir matreiðslumeistarar heiðraðir með Cordon Rouge-orðu samtakanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.

Veitt þeim sem hafa skarað fram úr

Þetta voru þeir Árni Þór Arnórsson og Jóhann Sveinsson. Cordon Rouge-orðan er veitt fyrir framúrskarandi framlag til fagmennsku og þróunar í matreiðslu á Norðurlöndum. Orðan er veitt þeim sem hafa skarað fram úr í störfum sínum, stuðlað að framgangi fagsins og lagt sitt af mörkum til samstarfs og tengsla á sviði matargerðar milli Norðurlanda.

Virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi

Árni Þór Arnórsson hefur verið áberandi í starfi Klúbbs matreiðslumeistara um árabil og unnið ötullega að faglegri uppbyggingu og alþjóðlegu samstarfi í gegnum verkefni á vegum klúbbsins, Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara (NKF) og Worldchefs. Með þátttöku sinni hefur hann verið virkur hlekkur í að efla faglegt tengslanet og styrkja stöðu íslenskra matreiðslumanna á alþjóðavettvangi.

Lykilhlutverk í starfi Klúbbs matreiðslumeistara

Jóhann Sveinsson hefur verið lykilpersóna í starfi Klúbbsins undanfarin ár, setið í stjórn, sinnt nefndarstörfum og gegnir í dag embætti varaforseta. Jóhann hefur komið að öllum helstu viðburðum KM síðasta áratuginn hið minnsta. Með sinni víðtæku reynslu og ómetanlegum stuðningi hefur hann verið mikilvægur hlekkur í undirbúningi og þátttöku kokkalandsliðsins í alþjóðlegum keppnum.

Orður veittar til danskra matreiðslumeistara

Við sama tilefni voru einnig danskir matreiðslumeistarar, Thomas Ris og Svend Rinken, heiðraðir með Cordon Rouge-orðu fyrir sitt framlag til matreiðslufagsins og norræns samstarfs.

Cordon Rouge-orðuveitingarnar voru hápunktur hátíðarkvöldverðarins þar sem matreiðslumeistarar frá öllum Norðurlöndunum komu saman til að efla tengsl, deila þekkingu og heiðra framúrskarandi framlag til matreiðslufagsins. Orðuveiting þeirra Árna, Jóhanns, Thomasar og Svends er jafnframt viðurkenning á því mikilvæga starfi sem unnið er innan norræns matreiðslusamfélags,“ segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara.

 

Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, fagnar hér með þeim félögum.
Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, fagnar hér með þeim félögum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert