Helena Gunnarsdóttir matarbloggari með meiru hjá Eldhúsperlum er mjög hrifin af því að vera með taco og sérstaklega með risarækjum.
„Ég fæ ekki nóg af taco og það er svo ljúffengt að útbúa sumarlegt rækjutaco og tekur enga stund. Sósan með 36% sýrðum rjóma er eiginlega stjarnan í þessari útfærslu og passar mjög vel með grilluðum risarækjunum,“ segir Helena.
Þegar sólin skín er upplagt að skella risarækjunum á grillið, það gefur svo gott bragð að grilla þær.
Grillað rækjutaco með límónusósu
Fyrir 4
- 800 g hráar risarækjur
- 3 msk. smjör, brætt
- 2 stk. hvítlauksrif, kramin
- 1⁄2 tsk. karrí
- 1 msk. ferskt kóríander, saxað
- 1⁄2 tsk. sjávarsalt
- chiliflögur eftir smekk
- grillteinar
Aðferð:
- Marínerið rækjurnar.
- Blandið öllu saman í maríneringuna og leggið afþýddar risarækjur í skál og blandið vel saman.
- Látið standa á meðan þið útbúið restina af réttinum.
- Síðan þræðið þið rækjurnar upp á spjót og grillið þegar sósan og meðlætið er tilbúið.
Límónusósa
- 1 dós sýrður rjómi 36% frá Gott í matinn
- 1 stk. límóna
- 3 msk. ferskt kóríander, saxað
- 1 tsk. hunang
- 1⁄2 tsk. sjávarsalt
- svartur pipar eftir smekk
- 2 msk. vatn
Aðferð:
- Rífið börkinn af límónunni og kreistið safann úr.
- Hrærið öllu í sósuna saman og smakkið ykkur til með salti og pipar.
- Ef ykkur finnst sósan of þykk er gott að þynna hana örlítið með vatni.
Meðlæti
- avókadó
- rauðkál
- grænt salat
- radísur
- ferskt kóríander
- límónur
- 12 stk. litlar hveititortillur
Aðferð og samsetning:
- Skerið meðlætið niður smátt.
- Þræðið rækjurnar upp á grillspjót og grillið á vel heitu grilli.
- Grillið einnig tortillukökurnar.
- Berið fram með meðlætinu, setjið sósuna neðst og raðið svo rækjum og meðlæti ofan á, kreistið límónu yfir.