Verður Heimir með heitasta kokteil sumarsins?

Fallegur ananaskokteill sem kemur úr smiðju Heimis Morthens og ber …
Fallegur ananaskokteill sem kemur úr smiðju Heimis Morthens og ber heitið Señor Pineapple. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helgarkokteillinn að þessu sinni kemur úr smiðju Heimis Morthens og ber enska heitið Señor Pineapple og er sumardrykkurinn hans í ár. Spurning hvort þetta verði sá heitasti í sumar.

Heimir býr til sitt eigið ananassalsa sem hann nýtir við kokteilagerðina. Hann er frægur fyrir að búa til ljúffenga og fallega kokteila, bæði áfenga sem og óáfenga. Hann hefur djúpa ástríðu fyrir mat og drykk og í dag er hann á réttum stað þar sem hann getur leyft henni að blómstra.

Heimir er menntaður í hótel- og veitingarekstri frá Háskólanum í Reykjavík og Hotel Institute Montreux í Sviss. Í dag er hann rekstrarstjóri og einn af eigendum Drykk Bar í Pósthús Mathöll í Pósthússtrætinu miðborginni og hefur starfað í hótel- og veitingabransanum í nærri 15 ár.

Ferill minn hófst í uppvaski á Hótel Búðum og síðan þá hef ég sinnt fjölbreyttum störfum – allt frá því að dæla bjór á American Bar, hrista kokteila á The Dorchester í London, gegna hlutverki bryta á The Retreat í Bláa lóninu og yfir í að reka eigin stað, Drykk Bar, í dag,“ segir Heimir og brosir.

Heimir Morthens kann sig fag vel og hefur djúpa ástríðu …
Heimir Morthens kann sig fag vel og hefur djúpa ástríðu fyrir mat og drykk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lánsamur að vinna með hæfileikaríku fólki

Starf mitt hefur þróast mikið með árunum. Þegar Drykk opnaði var ég að stíga mín fyrstu skref í rekstri. Það var krefjandi, en ég er einstaklega heppinn með öflugt bakland, meðeigendur mínir búa yfir mikilli reynslu í greininni, sem hefur reynst mér ómetanlegt. Rekstrarumhverfið í veitingageiranum getur vissulega verið erfitt, en það er líka einstaklega gefandi. Ég hef djúpa ástríðu fyrir mat, drykk og ekki síst fyrir framúrskarandi þjónustu sem heldur manni gangandi.

Ég hef verið svo lánsamur að vinna með hæfileikaríku fólki hér á Drykk, einstaklingum sem ég hef lært mikið af og vona einnig að þau hafi getað tekið eitthvað með sér frá mér, allir þessir einstaklingar eiga stóran hlut í hvað Drykk er í dag,“ segir Heimir alvörugefinn.

Drykk hefur tekið miklum framförum frá opnun og markmið okkar er að verða sífellt betri í því sem við gerum og bjóða upp á skemmtilega og bragðgóða kokteila í falleguog notalegu umhverfi. Það er líka vert að nefna að Róbert okkar, sem starfar á Drykk, gerði sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistaramót Barþjóna ársins 2025 og fer fyrir hönd Íslands til Kólumbíu seinna á árinu að keppa á heimsmeistaramóti barþjóna. Við erum ótrúlega stolt af honum.“

Barinn er staðsettur í fallegu rými í mathöllinni, í garðskálnum þar sem fallegt ólífutré tekur á móti gestum og huggulegt umhverfi umlykur gesti. „Barsætin á Drykk bjóða upp á mikla nánd við gesti, og okkur finnst ekkert skemmtilegra en að spjalla og prófa nýja og framandi hluti með þeim,“ bætir Heimir við.

Sumardrykkurinn Señor Pineapple

Aðspurður segist Heimir fá innblásturinn víða þegar kemur að kokteilagerð. Hann er búinn að þróa og gera sumardrykkinn sinn í ár sem er hinn fallegasti og ananasinn er í forgrunni.

Sumarkokteillinn blandaður.
Sumarkokteillinn blandaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þessi drykkur varð til út frá skrolli á TikTok og minni uppáhaldssósu sem ég nota á taco,sem góðir vinir mínir kenndu mér að búa til. Sjálfbærni er mikilvæg í kokteilagerð, þar sem hráefniskostnaður er hár.

Hvert smáatriði skiptir máli þegar kokteil skal gjöra.
Hvert smáatriði skiptir máli þegar kokteil skal gjöra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Það er líka list að hrista kokteila.
Það er líka list að hrista kokteila. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Að lokum er blandan streinuð eða hellt gegnum sigti í …
Að lokum er blandan streinuð eða hellt gegnum sigti í kokteilaglas. mbl.is/Eggert Jóhannesson


Í þessum drykk nýtum við til dæmis heilan ananas – allt frá berki til laufanna á toppnum. Ananasinn er svo nýttur bæði í salsa og oleo, þannig að ekkert fer til spillis. Drykkurinn minnir á Spicy Margarita, en fær skemmtilega ananas- og kóríandertóna. Ég mæli eindregið með að prófaog skil uppskriftina eftir hér að neðan,“ segir Heimir sem er kominn í sumargírinn eftir bongóblíðuna síðustu daga.

Heimir skreytir kokteilinn með anananslaufi.
Heimir skreytir kokteilinn með anananslaufi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Señor Pineapple

  • 4 cl Don Julio Blanco Tequila
  • 2 cl Lost Explorer Mezcal Espadín
  • 3 cl Ananassalsa (sjá aðferð hér að neðan)
  • 3 cl Ananas Oleo Saccharum (sjá aðferð hér fyrir neðan)
  • Klakar eftir þörfum

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í kokteilhristara og fyllið upp með klaka.
  2. Hristið vel með klökunum og sigtið í kælt kokteilaglas.
  3. Skreytið með ananaslaufi.
  4. Drykkurinn fær létt reyktan tón frá mezcal, sætt og súrt bragð frá ananasnum – og smá hita sem minnir á góða „spicy“ margaritu.

Ananassalsa

  • 1 ferskur ananas
  • 2 jalapeño
  • 1 búnt ferskt kóríander
  • Safi úr 4 límónum
  • Hvítt edik, örlítið
  • 2 msk. hunang
  • Salt, eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið utan af ananasnum og fjarlægið miðjuna, geymið og setj til hliðar fyrir oleo.
  2. Grillið ananasbita og jalapeño þar til þeir fá góða grillbrún (char).
  3. Setjið í blandara ásamt fersku kóríander, límónusafa, hunangi, salti og örlitlu ediki.
  4. Maukið þar til salsablandan verður slétt.
  5. Salsan á að vera með léttan hita, nóg til að gefa kokteilnum „kikk“, án þess að taka yfir bragðið.

Ananas Oleo Saccharum

  • Börkur af 1 ferskum ananas
  • 200 g sykur (hvítur eða hrásykur eftir smekk)

Aðferð:

  1. Eftir að þ hafið skrælt ananasinnfyrir salsa-ið og geymdbörkinn.
  2. Gætað því að sem minnst hvítt hold fylgi með, þ viljið helst bara gula hýðið með olíunum.
  3. Setjið börkinn í skál eða lokað ílát og dreif sykrinum yfir.
  4. Nuddið sykurinn örlítið inn í börkinn og leyfið blöndunni að standa við stofuhita í 6–12 klukkustundir, þar til síróp myndast.
  5. Sigtið síðan vökvann frá og geymið í lokaðri flösku í kæli.
  6. Geymist í 1–2 vikur.
Fegurð og einfaldleiki í glasi.
Fegurð og einfaldleiki í glasi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert