Nú er hægt að fá Bæjarins Beztu Pylsur sendar beint heim að dyrum í gegnum Wolt. Þá er um að ræða hvar sem er í Reykjavík og Reykjanesbæ að því fram kemur í fréttatilkynningu frá heimsendingarþjónustufyrirtækinu Wolt.
Bæjarins Beztu hafa í áratugi verið ómissandi hluti af íslenskri götumatarmenningu og boðið upp á pylsur með vandaðri samsetningu af steiktum lauk, hráum lauk, tómatsósu, sinnepi og remúlaði.
„Þær eru æðislegar og þetta er fljótleg og þægileg leið til að njóta þeirra,“ segir Jóhann Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.
„Við erum himinlifandi að vera komin í samstarf með Bæjarins Beztu og geta fært enn fleiri viðskiptavinum eina með öllu, hvort sem um ræðir heimamann sem vill eitthvað klassískt eða ferðamann sem leitast eftir að njóta uppáhalds skyndibita Íslendinga,“ bætir Jóhann við.
Viðskiptavinir í Reykjavík og Reykjanesbæ geta núna pantað með Wolt-appinu eða á vefsíðunni og skoðað úrval pylsa, meðlætis og drykkja hjá Bæjarins Beztu. Samtals er um að ræða níu staði í Reykjavík og einn í Reykjanesbæ, sem eru aðgengilegir í gegnum Wolt-appið.
Fyrirtækið Bæjarins Beztu Pylsur var stofnað árið 1937 og er frægasti pylsuvagn Íslands sem þjónustar goðsagnakenndar pylsur til heimamanna og ferðamanna. Pylsurnar bera nafn með rentu, að vera þær beztu í bænum, en það hefur verið margsannað í gegnum tíðina af óteljandi ánægðum viðskiptavinum, þar með talið frægu fólki, heimsleiðtogum, matarsérfræðingum og alls konar fólki, um allan heim.
„Þeir sem eru í góðum gír geta nú einnig nýtt sér sértilboð hjá Bæjarins Beztu í gegnum Wolt, sem eru kjörin lausn í góðu veðri, eða jafnvel veislur eins og fermingar eða útskriftir,“ segir Jóhann enn fremur.
Boðið er upp á þrjú mismunandi tilboð:
Það síðastnefnda hentar sérstaklega vel fyrir stórar samkomur eða þegar veðrið kallar á að njóta pylsuveislu með góðu fólki.
„Ég hef tröllatrú á heimsendingarmarkaðinum,“ segir Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri Bæjarins Beztu Pylsur.
„Við unnum náið með Wolt-teyminu til að finna réttu leiðina til þess að ferja pylsurnar og erum glöð að tilkynna að pokarnir sem við notumst við hafa virkað ótrúlega vel. Þeir gera það að verkum að pylsurnar eru næstum jafn góðar heima fyrir og beint úr vagninum. Við erum ótrúlega ánægð að fólk geti nú borðað bestu pylsur bæjarins nánast hvar sem það er staðsett.“
Wolt hóf starfsemi á Íslandi í maí 2023 og á Akureyri 20. mars 2024. Höfuðstöðvar tæknifyrirtækisins Wolt eru í Helsinki og gerir fyrirtækið viðskiptavinum sínum auðvelt að uppgötva bestu veitingastaðina, verslanir í nærumhverfinu og matvöru sem hægt er að panta og fá heimsent til einstaklinga og fyrirtækja.
Til að gera þetta mögulegt hefur Wolt þróað tæknilegar lausnir fyrir allt frá flæðistjórnun, verslunarhugbúnað og greiðslulausnum til reksturs matvöruverslana eins og Wolt Market. Wolt var stofnað 2014 og keypt af DoorDash 2022. DoorDash rekur starfsemi í 32 löndum og er Wolt með starfsemi í 28 af þeim löndum.