Pepperóní-ostasalat úr gömlu Brauðréttabók Hagkaups

Nostalgíufiðringur fór um Berglindi Hreiðars þegar hún útbjó og smakkaði …
Nostalgíufiðringur fór um Berglindi Hreiðars þegar hún útbjó og smakkaði þetta ostasalat. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar ásamt betri helmingnum, Hermanni Hermannssyni, hafa verið að grúska í gömlu, góðu Brauðréttabók Hagkaups og úr varð að hún gerði þetta dýrindis ostasalat með pepperóní. Jóhannes Felixsson, betur þekktur sem Jói Fél, á heiðurinn af uppskriftinni enda ófáar uppskriftir eftir hann í uppskrifaseríubókum Hagkaups.

„Þetta er nokkuð stór uppskrift og dugar vel í tvær skálar svo þetta er hið fullkomna veislusalat. Við vorum farin að rífa ostinn niður á sínum tíma en ég hef færst aftur til þess að skera hann í teninga, bara reyna að hafa þá frekar litla,“ segir Berglind um ostasalatgerðina.

Nú er bara að prófa og slá í gegn í næsta boðið með þessu ostasalati.

Pepperóní-ostasalat

  • 200 g Heinz majónes
  • 150 g sýrður rjómi
  • 1 papriku kryddostur
  • 2 pepperóní kryddostur
  • 100 g skinka
  • 50 g salami
  • ½ laukur
  • 20 vínber

Aðferð:

  1. Pískið majónes og sýrðan rjóma saman.
  2. Skerið ostinn í litla bita ásamt skinku og salami. Saxið laukinn smátt og skerið vínberin niður.
  3. Blandið næst öllu saman og leyfið að standa í kæli í 3 klukkustundir og njótið með Ritz-kexi og/eða góðu brauði.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert