Alþingi kaus í dag um sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bankaráð Seðlabankans.
Aðalmenn í bankaráði verða:
- Bolli Héðinsson fyrir Samfylkinguna
- Guðrún Johnsen fyrir Samfylkinguna
- Gylfi Zoega fyrir Viðreisn
- Oddný Árnadóttir fyrir Flokk fólksins
- Birgir Ármannsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn
- Ólafur Ísleifsson fyrir Miðflokkinn
- Arnar Bjarnason fyrir Framsóknarflokkinn
Varamenn þeirra verða:
- Gunnar Alexander Ólafsson
- Freyja Vilborg Þórarinsdóttir
- Katrín Ólafsdóttir
- Katrín Viktoría Leiva
- Teitur Björn Einarsson
- Bessí Þóra Jónsdóttir
- Aðalheiður Sigursveinsdóttir
Atkvæðagreiðslunni hafði áður verið frestað en samkvæmt heimildum mbl.is kom frestunin til vegna vandræða með kynjahlutföll.