Brotist inn og ráðist á húsráðanda

Brotist var inn í íbúð og ráðist á húsráðanda í miðborginni. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu lögreglu vegna mála sem hún sinnti á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Ljósmynd/Colourbox

Slagsmál og grunsamlegar mannaferðir

Þá var tilkynnt um slagsmál við skemmtistað í miðborginni og grunsamlegar mannaferðir í hverfi 104.

Tekið er fram í tilkynningunni að ekki sé um tæmandi upptalningu að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert