Ólögleg áfengissala í Kópavogi

Gott er að búa í Kópavogi, eins og löngum hefur …
Gott er að búa í Kópavogi, eins og löngum hefur verið haft fyrir satt, en lögreglu þar barst tilkynning um ólöglega áfengissölu í dag og hélt á vettvang til að rannsaka málið. mbl.is/Árni Sæberg

Líkamsárás, þjófnaður í matvöruverslun og eldur í bifreið eru meðal þeirra mála sem komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Alls eru 35 mál, sem lögreglumenn sinntu á tímabilinu frá klukkan fimm í morgun til fimm síðdegis, skráð í kerfi embættisins.

Lögreglumenn af lögreglustöð 1 við Hverfisgötu sinntu líkamsárásarmáli, en árásaraðili var farinn af vettvangi er lögregla kom þangað. Málið er í rannsókn. Þá var þjófnaðarmálið í versluninni leyst á staðnum, mál vegna innbrots í bifreið er í rannsókn og eld sem logaði í bifreið var búið að slökkva þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang.

Slys á fólki við umferðaróhapp

Lögreglumenn í Hafnarfirði fengu tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir við heimahús, en sá sem grunsamlegur þótti var horfinn af vettvangi er lögregla birtist.

Til Kópavogsstöðvar barst tilkynning um ólöglega áfengissölu og hélt lögregla á vettvang til að rannsaka hana. Í Kópavoginum var annar fingralangur aðili á ferð í annarri matvöruverslun og var málið leyst eins og í Reykjavík – á vettvangi.

Tvö umferðaróhöpp komu til kasta lögreglu á stöðinni við Vínlandsleið og var um eignatjón að ræða í hvoru tveggja óhappinu. Slys á fólki urðu í öðru þeirra en ekki í hinu. Í því fyrrnefnda reyndist annar ökumannanna, er hlut áttu að máli, vera sviptur réttindum til aksturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert