50 björgunarsveitarmenn leituðu að Sigríði

Slysavarnafélagið Landsbjörg leitaði konunnar í nótt.
Slysavarnafélagið Landsbjörg leitaði konunnar í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um 50 björgunarsveitarmenn leituðu að Sigríði Jóhannsdóttur þangað til um fjögurleytið í nótt, án árangurs.

Lögreglan lýsti eftir henni um eittleytið í nótt þar sem kom fram að ekkert væri vitað um ferðir hennar síðan á föstudag.

Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, barst útkallið rétt fyrir miðnætti. Gengið var um í hópum og leitað að konunni, auk þess sem hjól og drónar voru notuð.

Leitað var á Reykjavíkursvæðinu, meðal annars í nágrenni við heimili hennar.

Um fjögurleytið var ákveðið að fresta leitinni. Lögreglan ákveður næstu skref í dag, að sögn Jóns Þórs. Hann hvetur fólk sem hefur einhverjar vísbendingar um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert