Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út upp úr klukkan eitt í nótt vegna vatnsleka í einbýlishúsi í Hafnarfirði.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hafði klósettkassi lekið með þeim afleiðingum að vatn lak á milli hæða og þurfi slökkviliðið að hreinsa upp úr kjallara hússins.
Eldur kviknaði í húddi bíls við Nettó í Þönglabakka um hálftíuleytið í gærkvöldi. Verið var að draga bílinn á verkstæði þegar eldurinn kviknaði.