Myndir: Mótmæltu hælisleitendastefnu stjórnvalda

Mótmælendur voru hvattir til að hafa íslenska fánann og góða …
Mótmælendur voru hvattir til að hafa íslenska fánann og góða skapið meðferðis. Ólafur Árdal

Mótmælafundur hóps sem kallar sig Ísland þvert á flokka fór fram á Austurvelli í dag en þegar ljósmyndara mbl.is bar að garði höfðu tæplega hundrað manns safnast saman, margir með íslenska fánann reistan á loft.

Um var að ræða annan mótmælafund hópsins en sá fyrri vakti mikla athygli og harða gagnrýni, en þá kom til ryskinga á milli mótmælenda á vegum hópsins og svo mótmælenda sem boðuðu til mótmæla gegn rasisma.

Lögregla var með viðbúnað við mótmælin.
Lögregla var með viðbúnað við mótmælin. Ólafur Árdal

Vilja fimm ára hlé

Á fundarboði félagsins segir að fundurinn hafi verið haldinn vegna stefnu stjórnvalda í málefnum hælisleitenda en í kröfugerð sem fylgdi boðinu er meðal annars farið fram á að hælisleitendur verði vistaðir í lokuðu úrræði eða sendir úr landi meðan á bakgrunnsrannsókn stendur og að þeir sem komi án skilríkja verði sendir til baka.

Þá var líka farið fram á að fimm ára hlé verði gert á afgreiðslu nýrra hælisumsókna.

Fundarmenn voru Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi, Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og Ágústa Árnadóttir.

Voru mótmælendur hvattir til að mæta með íslenska fánann og góða skapið.

Sigfús Aðalsteinsson, forsprakki félagsins, var meðal ræðumanna.
Sigfús Aðalsteinsson, forsprakki félagsins, var meðal ræðumanna. Ólafur Árdal
Um hundrað manns söfnuðust saman á Austurvelli.
Um hundrað manns söfnuðust saman á Austurvelli. mbl.is/Ólafur Árdal
mbl.is/Ólafur Árdal
mbl.is/Ólafur Árdal
mbl.is/Ólafur Árdal
mbl.is/Ólafur Árdal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert