Íslendingar láti vita af sér

Slökkviliðsmenn í Teheran, höfuðborg Írans, virða fyrir sér skemmdir í …
Slökkviliðsmenn í Teheran, höfuðborg Írans, virða fyrir sér skemmdir í borginni í dag. AFP

Utanríkisráðuneytið biður Íslendinga í Ísrael og Íran að láta aðstandendur vita af sér, en hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustunnar, +354 545-0112, ef aðstoðar er þörf.

„Virðið tilmæli yfirvalda og fylgist með staðbundnum fjölmiðlum. Utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

Í nótt gerði Ísraelsher árásir á skotmörk í Íran. Sam­kvæmt ísra­elsk­um stjórn­völd­um þá var árás­un­um beint að kjarn­orku­innviðum Írans sem og hernaðarleg­um innviðum. Yf­ir­maður ír­anska bylt­ing­ar­varðar­ins hef­ur verið drep­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert