Heilbrigðisráðuneytið fyrirætlar að opna miðstöð, í samráði við minningarsjóð Bryndísar Klöru, fyrir börn sem hafa mátt þola ofbeldi. Miðstöðin mun bera nafnið Bryndísarhlíð.
Stjórnendur minningarsjóðs Bryndísar Klöru hafa lýst vilja til að styðja við verkefnið. Þá er áætlað að sjóðurinn fjármagni húsnæði miðstöðvarinnar, að því er segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.
Miðstöðin myndi meðal annars hýsa geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn sem sætt hafa ofbeldi.
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir fram undan vera mótun þeirrar þjónustu sem verður í Bryndísarhlíð.
„Þjónustan í Bryndísarhlíð verður skipulögð og rekin af hinu opinbera en framlag Minningarsjóðs Bryndísar Klöru er húsnæðið fyrir starfsemina,“ er haft eftir Ölmu í tilkynningu.
Þá hyggst heilbrigðisráðuneytið einnig hefja skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum, auk þess er fyrirætlað að koma á fót móttöku á Landspítala fyrir börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi.
Áætlað er að fyrstu skimanir verði í haust, sem tilraunaverkefni. Þá hefur fjármagn til verkefnisins þegar verið tryggt.