Þristur fluttur á Sólheimasand

Flugvélin hífð við hlið á Keflavíkurflugvelli fyrr í kvöld. Haldið …
Flugvélin hífð við hlið á Keflavíkurflugvelli fyrr í kvöld. Haldið verður svo austur í Mýrdal undir nóttina. Ljósmynd/Benedikt Bragason

Síðar í kvöld verður TF-ISB, sem er Doulgas DC-3 eða Þristur eins og slíkar vélar eru yfirleitt kallaðar, flutt frá Keflavíkurflugvelli austur á Sólheimasand í Mýrdal. Landeigendur þar eignuðust vélina nýlega og hyggjast koma henni fyrir á sandinum, þar sem fyrir er flak vél sömu gerðar sem margir gera sér erindi til að skoða.

„Við leggjum af stað núna síðla kvölds og ættum að vera komin austur fyrri hluta nætur. Förum þá héðan frá Keflavíkurflugvelli og svo Suðurstrandarveginn austur á bóginn,“  segir Benedikt Bragason á Ytri-Sólheimum. Hann er í hópi landeigenda að Sólheimasandi sem af Þristarvinafélaginu keyptu flugvélina nú nýlega. Henni var síðast flogið fyrir um hálfri öld, þá af Flugfélagi Norðurlands. Áður var vélin lengi í þjónustu Flugfélags Íslands. Síðustu áratugi hefur TF-ISB verið rykfallandi í geymslum flugskýla.

Þristurinn sem fyrir er á Sólheimasandi hefur staðið þar frá í nóvember árið 1973. Sá var í eigu Varnarliðsins og var að koma austan frá Hornafirði þegar þurfi að nauðlenda þurfi fram undir flæðarmáli vegna ísingar í lofti.

TF-ISB verður komið fyrir á sömu slóðum á sandinum innan tíðar. Slíkt væntanlega skerpir á aðdráttarafli staðarins, sem þúsundir ferðamanna heimasækja á ári hverju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert