Ólöglega í landinu og starfandi án réttinda

Lögreglan stöðvaði mannin sem reyndist starfa án réttinda og var …
Lögreglan stöðvaði mannin sem reyndist starfa án réttinda og var ólöglega í landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan handtók mann fyrr í dag sem reyndist vera ólöglega í landinu og starfandi án réttinda.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn gat ekki gert grein fyrir sjálfum sér og var því tekinn höndum.

Alls sinnti lögregla 42 málum á milli klukkan 5 og 17 í dag. Þá sinnti lögregla þremur ótengdum málum um menn í annarlegu ástandi í Reykjavík í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert