Byggja á nýtt fangelsi í landi Stóra-Hrauns á komandi árum og mun það taka við Litla-Hrauni sem stærsta fangelsi landsins. Verðmiði þess hefur hækkað nokkuð frá því að framkvæmdin var fyrst kynnt í fyrra.
Stóra-Hraun verður fyrsta öryggisfangelsi landsins, en ekkert fangelsi hér á landi hefur hingað til verið flokkað sem öryggisfangelsi þó að Litla-Hraun hafi verið notað sem slíkt. En hvað felst í að fangelsi verði að öryggisfangelsi og af hverju var t.d. ekki fangelsið á Hólmsheiði byggt sem slíkt, en það var opnað árið 2016?
Nýtt fangelsi að Stóra-Hrauni var kynnt í fyrra af þá verandi dómsmálaráðherra. Var þá horft til að mannvirkið yrði klárað í lok árs 2028 og myndi kosta 14,4 milljarða. Ákveðið var að fara í byggingu nýs fangelsis í stað endurbóta á Litla-Hrauni vegna mikils kostnaðar sem áætlað var að endurbæturnar myndu kosta.
Í síðasta mánuði var birt tilkynning á vef Stjórnarráðsins þar sem frekari upplýsingar voru settar fram um framkvæmdina. Kom þar meðal annars fram að áætlaður kostnaður sé nú 17,8 milljarðar við fyrsta áfanga verkefnisins, en sá kostnaður er sagður falla á árin 2026 til 2030. Er það 3,4 milljörðum meira en kynnt hafði verið í nóvember, um hálfu ári áður.
Áður hafði verið greint frá því að kostnaðurinn hefði þegar tvöfaldast frá því að fyrsta var tilkynnt um nýtt fangelsi árið 2023, en þá var áætlað að kostnaðurinn yrði um sjö milljarðar.
Vonast er til að framkvæmdir geti hafist fljótlega, en í kjölfar fyrsta áfanga er svo áætlað að hefja seinni áfangann.
Í fyrsta áfanga verksins er gert ráð fyrir 84 klefum á Stóra Hrauni og þangað til fangelsið verður fullbyggt verði nokkrir klefar á Litla Hrauni notaðir samhliða. Er því gert ráð fyrir að pláss verði fyrir um 90 til 98 fanga á hverjum tíma. Þegar fangelsið að Stóra Hrauni verður fullbyggt er gert ráð fyrir að það geti hýst allt að 128 fanga.
Þegar undirbúningur stóð yfir við gerð fangelsisins á Hólmsheiði var oft talað um hér á landi skorti öryggisfangelsi og kom það meðal annars fram í ræðum þingmanna. Hins vegar varð niðurstaðan að byggja fangelsi sem flokkast sem gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi.
Blaðamanni lék forvitni á að vita hver munurinn er á slíku fangelsi og öryggisfangelsi, af hverju Hólmsheiði var ekki byggt sem öryggisfangelsi og líka hvort Litla-Hraun í dag sé ekki talið sem einhverskonar öryggisfangelsi.
Í svörum dómsmálaráðuneytisins kemur fram að eitt af markmiðum með byggingu fangelsisins á Hólmsheiði hafi verið að byggja nýtt fangelsi í stað eldri og minni fangelsa í Reykjavík sem var lokað með tilkomu Hólmsheiðar. Þá átti nýja fangelsið að sjá um gæsluvarðhald til skemmri tíma og geta séð um fanga í einangrun og að vera með lokaða deild fyrir konur í afplánun.
„Fangelsinu var ætlað að vera mjög sveigjanlegt í notkun og geta sinnt mörgum ólíkum verkefnum á sama tíma. Fangelsið virkar vel í þeim tilgangi en við hönnun þess og byggingu var ekki horft til staðlaðra viðmiða um öryggisstig,“ segir í svari ráðuneytisins.
Öryggisstigin sem vísað er í eru fjögur, frá 0 og upp í 3, en til að flokkast sem öryggisfangelsi þarf fangelsi að vera á stigum 0 og upp í 2, þar sem stig 0 felur í sér mestar öryggiskröfur. Fangelsi á öryggisstigi 3 geta verið lokuð fangelsi, en þau teljast þó ekki öryggisfangelsi.
Segir í svari ráðuneytisins að ef fangelsið á Hólmsheiði hefði átt að vera öryggisfangelsi og þar með allavega á öryggisstigi 2 hefði húsnæðið þurft að vera talsvert stærra og öll ytri umgjörð þess og aðgangsstýring mun umfangsmeiri. Slíkt hefði þó kallað á meiri kostnað. Sem fyrr segir var því ákveðið að Hólmsheiði yrði gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi sem flokkast á öryggisstigi 3, en ekki öryggisfangelsi.
Ef við snúum okkur aftur að Litla-Hrauni og Stóra-Hrauni þá hefur Litla-Hraun ekki uppfyllt þau skilyrði sem sett eru til að fangelsi geti talist sem öryggisfangelsi. „Það hefur þó engu að síður verið notað sem slíkt en afleiðingarnar eru erfiðara er að tryggja öryggi fanga og starfsmanna nægjanlega vel. Aðbúnaður þar er ekki heldur nægjanlega góður til þess að tryggja réttindi allra fanga, sérstaklega þeirra sem vistast við miklar öryggisaðstæður,“ segir í svari ráðuneytisins.
Stóra-Hrauni er hins vegar ætlað að bæta þetta upp og mun það starfa á öryggisstigi 2 samkvæmt svarinu. Þá verða einnig klefar og aðstaða á öryggisstigi 1 og jafnframt verður hægt að hafa hluta fangelsisins á öryggisstigi 3 ef þarf, þ.e. á sama öryggisstigi og Hólmsheiði er í dag.
Ekki verður þó um hámarksöryggisfangelsi að ræða (öryggisstig 0), eða það sem á ensku kallast „maximum security prison“.
Eins og sjá má á teikningum sem birtar hafa verið af fyrirhuguðu fangelsi á Stóra-Hrauni mun það samanstanda af nokkrum byggingum og stórum fangelsisgarði, sem skipt verður upp, en samkvæmt teikningu verður meðal annars fótboltavöllur í garðinum. Í kringum garðinn verður svo margþátta girðing eða annars konar fyrirstaða til að koma í veg fyrir að einhver komist inn eða út.