Guðrún: „Hingað og ekki lengra“

Guðrún Hafsteinsdóttir var harðorð í ræðu sinni í dag í …
Guðrún Hafsteinsdóttir var harðorð í ræðu sinni í dag í eldhúsdagsumræðum. Morgunblaðið/Karítas

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisfjármálin glíma við útgjaldavanda fremur en tekjuvanda.

Í ræðu sinni í fyrri umferð eldhúsdagsumræðna á Alþingi fyrr í kvöld gagnrýndi Guðrún ríkisstjórnina sem hún telur ekki hafa sýnt fram á raunhæfar aðgerðir varðandi hagræðingu í ríkisrekstri, þvert á móti telur Guðrún að ríkisstjórnin boði útgjaldaaukningu.

„Ísland er þegar með eitt umfangsmesta opinbera kerfi í heiminum. Nú þarf raunverulega hagræðingu og forgangsröðun. Það er ekki val, heldur nauðsyn ef við ætlum að standa vörð um traust opinberra fjármála og jafnræði á milli kynslóða,“ segir Guðrún í ræðustól Alþingis. 

Gagnrýnir frumvarp Ingu

Guðrún beinir spjótum sínum í upphafi ræðu sinnar að frumvarpi Ingu Sæland sem kveður á um að binda greiðslur bóta úr almannatryggingakerfinu við launavísitölu. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt harðlega, meðal annars í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 

„Ríkisstjórnin talar um aðhald, en gerir annað. Hún lofar að draga úr útgjöldum en ætlar að binda um fimmtung ríkisútgjalda við launavísitölu. Þannig verða tugir milljarða króna útgjöld sjálfvirk, án nokkurrar aðkomu Alþingis. Þetta er ekki ábyrgt. Þetta er afsalað vald, með lokuðum augum, frá þjóðkjörnum fulltrúum til ófyrirsjáanlegrar launaþróunar.“

Einnig gagnrýnir Guðrún ríkisstjórnina þegar kemur að aðgerðum hennar til þess að ná tökum á ríkisfjármálum sem er eitt af skrásettum markmiðum ríkisstjórnarinnar. 

„Ríkisstjórnin hefur í orði kveðnu sett sér það markmið að ná tökum á ríkisfjármálum, stöðva hallarekstur og skapa rými fyrir vaxtalækkanir, en verkin tala öðru máli. Þrátt fyrir hástemmd orð hefur ríkisstjórnin í raun slakað á aðhaldi og það einmitt þegar þörfin er hvað brýnust.“

Ríkið eigi ekki að stjórna fólki

Guðrún sneri sér svo að grunnstefi Sjálfstæðisflokksins og sagði einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki skapa verðmæti í samfélaginu – ekki ríkisvaldið. 

„Þess vegna segjum við í Sjálfstæðisflokknum: Hingað og ekki lengra. Það er ekki hlutverk ríkisins að vita alltaf best eða stýra hverju skrefi einstaklinganna. Hlutverk þess er að skapa trausta umgjörð, styðja við verðmætasköpun og draga sig í hlé þegar einstaklingurinn stendur styrkum fótum. Við verðum líka að horfast í augu við þá einföldu staðreynd að engin þjóð hefur orðið ríkari með því að skattleggja fólk umfram getu þess.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert