Stórgræddi á sölu íbúðarinnar til sendiráðsins

Stefan Strandberg á 36 landsleiki að baki fyrir hönd Noregs.
Stefan Strandberg á 36 landsleiki að baki fyrir hönd Noregs. Samsett mynd

Norski fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Stefan Strandberg hagnaðist vel á sölu íbúðar sinnar til íslenska sendiráðsins í Osló.

Þessi nýi sendiherrabústaður í Osló var áður þrjár íbúðir en þær hafa nú verið gerðar að einni. Strandberg keypti íbúðirnar þrjár árið 2020 fyrir 38 milljónir norskra króna sem jafngildir um 475 milljónum íslenskra króna.

Íslenska sendiráðið í Osló greiddi um 60 milljónir norskra króna eða 750 milljónir íslenskra króna fyrir íbúðina.

Norska dagblaðið VG greinir frá þessu nú í dag. 

Eldri bústaðurinn er enn óseldur

Sendiráðið í Osló festi kaup á þessum nýja sendiherrabústað fyrr í mánuðinum. Sendiráðið hefur áður greint frá því að gera þurfi nauðsynlegar endurbætur á bústaðnum en endanlegur viðbótarkostnaður af þeim sökum liggur ekki fyrir að svo stöddu.

Bústaðurinn er við Aker-bryggju í Frogner-hverfi í Osló en fasteignaverð er hvergi hærra í Osló en í hverfinu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði í samtali við mbl.is í seinustu viku að ákvörðunin um sölu á eldri sendiherrabústaðnum og kaupin á þeim nýju hefði verið tekin á forsendum hagkvæmni og til að færa bústaðinn nær þeim stofnunum sem sendiráðin eru alla jafna í sambandi við.

Eldri sendiherrabústaðurinn í Osló er nú á sölu, ásett verð er um einn milljarður íslenskra króna. Bústaðurinn hefur þó enn ekki selst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert