Orri Harðarson, tónlistarmaður og rithöfundur, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 7. júní síðastliðinn, á 53. aldursári, eftir skammvinna baráttu við krabbamein.
Orri fæddist á Akranesi 12. desember 1972 og ólst þar upp. Foreldrar hans eru Hörður Ó. Helgason, fv. skólameistari og knattspyrnuþjálfari, og Sigrún Sigurðardóttir, fv. læknaritari.
Orri fékk snemma áhuga á tónlist og gaf út sína fyrstu plötu tvítugur að aldri. Hann starfaði um árabil sem tónlistarmaður, gaf út nokkrar hljómplötur og hlaut ýmsar viðurkenningar á þeim vettvangi, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin. Orri vann einnig við upptökustjórn í hljóðverum og útsetti tónlist fyrir aðra.
Hann sneri sér síðan meira að ritstörfum. Árið 2008 sendi hann frá sér sína fyrstu bók, Alkasamfélagið, og hlaut fyrir hana Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar. Árið 2014 kom út hans fyrsta skáldsaga, Stundarfró, og tveimur árum síðar kom út skáldsagan Endurfundir. Hann vann einnig við þýðingar og ýmis önnur ritstörf. Orri var útnefndur bæjarlistamaður Akureyrar 2017-2018.
Dætur Orra með fv. eiginkonu, Ingu Elísabetu Vésteinsdóttur, eru Karólína, 14 ára, og Birgitta Ósk, 11 ára.