Framkvæmdirnar óheppilegar en afturkræfar

Vala segir að jarðvegurinn ofan á beðaslettum verð fjarlægður.
Vala segir að jarðvegurinn ofan á beðaslettum verð fjarlægður. Samsett mynd

Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur hjá Veitum, segir framkvæmdirnar við Laugarnes óheppilegar en afturkræfar. Auðvelt sé að fjarlægja jarðveg af beðasléttum sem liggja við hlið skurðarins. Fyrir liggur þó að verktaki hóf framkvæmdir á svæðinu án leyfis.

Greint var frá því um helgina að framkvæmdir á vegum Veitna hefðu valdið „óafturkræfum“ skemmdum á friðlýstu svæði Laugarness, svokölluðum beðasléttum í túni. Laugarnesvinir, óformleg samtök fólks sem þykir vænt um Laugarnestangann, sögðu framkvæmdirnar hafa átt sér stað án vitneskju Minjastofnunar. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum var þó samráð við Minjastofnun vegna verkefnisins.

Að sögn Völu var sótt um framkvæmdarleyfi þann 29. maí og var enn verið að bíða eftir leyfi frá Minjastofnun þegar framkvæmdir hófust. Verktakinn hóf því framkvæmdir um helgina án leyfis en að sögn Völu taldi hann sig ekki vera að vinna innan eftirlitssvæðis.

Lagnaskurðurinn liggur að mestu leyti ofan í gömlum lagnaskurði. Það er því aðeins verið að eiga við svæði sem hefur þegar verið raskað. Vala segir að það sé samt sem áður óheppilegt að jarðvegur hafi verið lagður ofan á beðasléttur frá 19. öld en það sé vel hægt að fjarlægja hann án þess að það hafi áhrif á jarðveginn.

„Hann áttaði sig eflaust ekki á því að hann væri kominn nálægt eftirlitssvæði [...] Við munum hafa eftirlit með þessu svæði og sá jarðvegur sem er kominn ofan á beðaslétturnar verður fjarlægður. Það er því ekki rétt að það séu óafturkræfar skemmdir,“ segir Vala í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka