Aðskilin frá móður sinni í tvö ár: „Góða nótt“

Ngan Kieu Tran, sem á dögunum varð dúx Fjölbrautaskólans við Ármúla, fluttist hingað til lands árið 2022 eftir tveggja ára aðskilnað frá móður sinni. Íslenskukunnáttan var svo gott sem engin en Ngan kunni eina kveðju; góða nótt.

Ngan er gestur Dagmála ásamt þeim Diönu Al Barouki og Dönu Zaher El Deen. Þær komu hingað allar til lands árið 2022, Ngan frá Víetnam og Diana og Dana frá Sýrlandi, og kynntust í Fjölbrautarskólanum við Ármúla þar sem þær útskrifuðust nýverið með glæsibrag. 

Vissi ekkert um Ísland

Í Dagmálum fer Ngan yfir flutning sinn hingað til lands frá Víetnam. Móðir hennar hafði fengið hér vinnu og komið til Íslands árið 2020. 

Var þá planið að Ngan og faðir hennar myndu fylgja móður hennar eftir skömmu síðar, en sökum Covid-faraldursins komust þau ekki hingað fyrr en tveimur árum síðar. 

Ngan segir það erfitt að hafa verið aðskilinn frá móður sinni allan þann tíma, sérstaklega í ljósi faraldursins sem gekk yfir á þeim tíma. 

Þá vissi hún ekkert um Ísland fyrir flutning sinn hingað til lands en nýtti sér biðtímann til að kynna sér landið. Hún lærði jafnframt eina íslenska kveðju frá móður sinni á meðan. 

„Það var „góða nótt“. Af því að þegar mamma mín hringdi í mig þá var alltaf nótt í Víetnam,“ segir Ngan. 

Aðspurð segist henni líða vel á Íslandi. Erfitt sé þó að venjast einu alíslensku fyrirbæri; íslenska veðrinu.  

Í Dagmálum fara Ngan, Diana og Dana yfir námsárangur sinn, lífið hér á landi sem og líf þeirra áður en haldið var til Íslands. 

Þáttinn má sjá í heild sinni hér að neðan. 

Lærðu íslensku og dúxuðu menntaskólann

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka