Björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar út upp úr klukkan níu í kvöld til að leita að göngumanni við Esju.
Þetta segir Hinrik Wöhler, staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar, í samtali við mbl.is.
Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar einnig við leitina sem enn stendur yfir. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.