Eldur í íbúð í Engihjalla

Störfum slökkviliðsins er að ljúka.
Störfum slökkviliðsins er að ljúka. mbl.is/Hákon

Mikið viðbragð er vegna út­kalls hjá Slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu. 

Varðstjóri gat ekki veitt frek­ari upp­lýs­ing­ar að svo stöddu. 

Uppfært 13:00

Dælubílar frá öllum stöðum slökkviliðsins voru kallaðir til vegna elds í íbúð í Engihjalla í Kópavogi. 

Talið er að búið sé að slökkva eldinn. 

Uppfært 13:25

Eldurinn kviknaði úti á svölum íbúðar á fjórðu hæð. Enginn var inni í íbúðinni er eldurinn kviknaði og engan sakaði. Verið er að reykræsta íbúðina. Eldsupptök eru ókunn. 

Eldurinn kviknaði á fjórðu hæð.
Eldurinn kviknaði á fjórðu hæð. Ljósmynd/EGB
Talsverðar skemmdir urðu.
Talsverðar skemmdir urðu. Ljósmynd/EGB

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert