Þorgerður farin að finna til þreytu?

Sam­fé­lags­miðlar ís­lensks stjórn­mála­fólks eru alltaf und­ir smá­sjá og því sem þar fer fram gert skil með reglu­bundn­um og skemmti­leg­um hætti í Spurs­mál­um. Yf­ir­ferðina má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Útgerðarmenn aðeins sætari er sjómenn

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land síðastliðinn sunnudag enda er það það minnsta sem þjóðin getur gert að heiðra hetjur hafsins einu sinni á ári. Það er sko sjómönnum að þakka að landsmenn lifa við allsnægtir. Höfum það alveg á hreinu. Við erum náttúrulega bara að fagna því, við litlu mergsugurnar. Við værum auðvitað ekkert að halda sérstaklega upp á einhvern dag ef við myndum ekkert græða á því, er það nokkuð?

Æ, mér finnst samt sjómennskan eitthvað smá eggjandi - eitthvað svo röff stöff eitthvað. Ég elska sjómenn. En ég elska samt eiginlega útgerðarmenn aðeins meira. Peningar gera fólk bara eitthvað aðeins meira kjút. Þess vegna er ég algjörlega á móti nýja veiðigjaldinu. Það eiga nefnilega ekkert allir að geta verið gordjöss. Það er ekkert jafnspennandi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eyþór

Obba og Hanna Kata saman í messu

Obbfríður dómsmálaráðherra heiðraði hetjur hafsins með því að skella sér í sjómannamessu í Dómkirkjunni ásamt Hönnu Kötu sem reyndar nennti ekki að hafa fyrir því að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn í gegnum samfélagsmiðla en hafði samt fyrir því að pósta sömu myndinni tvisvar af dætrum sínum sem voru að útskrifast. Kannski er þetta merki um að hún sé orðin miðaldra?

Halla Hrund naut sín á höfninni í Grindavík

Hjarta Höllu Hrundar slær fyrir Ísland, hún er sennilega mesti Íslendingur allra Íslendinga, í það minnsta er hún ástríðufyllsti Íslendingurinn. Hún elskar íslenska hestinn meira en allt en hún elskar ekki síður fiskinn í sjónum við strendur Íslands. Eyddi hún sjómannadeginum í Grindavík við íslenskustu aðstæður sem fyrirfinnast; við höfnina í hávaðaroki á virku eldsvæði.

Jens Garðar sendi Sigurjóni pillu

Jenni jaxl hélt sjómannadaginn hátíðlegan heima á Eskifirði líkt og sjá má. Svo tók hann Sigurjón Þórðarson í smá bóndabeygju í ræðustól Alþingis líka. Það er sko ekki að ástæðulausu að hann sé kallaður Jenni jaxl.

Stúlkan sem starir á hafið

K-Frost Jordan stillti sér upp á syllu við sjóinn - stúlkan sem starir á hafið væb dauðans. Já, þarna pósar forsætisráðherra bara við auðugustu fiskimið jarðkringlunnar. Hún segir það líka í myndafærslunni að þetta eigum við bara allt saman, ég og þú og allir hinir. Af hverju hefur enginn sagt manni það fyrr? Þá myndi maður kannski keyra um göturnar á einhverju öðru en notaðri ryðhrúgu af bland.is og búa annars staðar en í pappakassa í Hlíðunum. Kræst!

Bænheyrða sjálfan

Það er ekki laust við að ég hafi fengið hland fyrir hjartað í vikunni þegar ég skrollaði í gegnum samfélagsmiðlana hjá sjálfukónginum og fann enga sjálfu bara einhverja grútleiðinlega og þurra statusa um einhverjar forsetakosningar í Póllandi. Fór næstum því að gráta en ákvað að prófa að biðja til Guðs um að Pawel myndi deila í það minnsta einni selfie. Og viti menn! Ég var bænheyrð!

Nettröllið Inga Sæland fór fram með offorsi

Það sprakk augljóslega aðeins á taugakerfi Ingu Sæland á dögunum þegar hún gjörsamlega missti sig og óvart allt kúlið yfir umræðunni um strandveiðarnar. „Ja, det er bare veldig sprungt nervesystemet hennes“ og gerðist hún bara allt í einu eitthvað nettröll þar sem hún drullaði yfir allt og alla á Fésbókarsíðu sinni. Elsku hjartans Inga mín, það er ekki hollt að vera svona reið. Við sendum þér sól í hjarta héðan úr Hádegismóum og kærleiksknús í hús.

Fjölga leikskólaplássum á næstu fimm árum 

Ævintýri borgarstubbanna Tinký-Vinký, Dipsý, Lala og Pó heldur áfram að skrifa sig og fóru þeir aldeilis á kostum á dögunum. Tvö þúsund ný leikskólapláss munu líta dagsins ljós á næstu fimm árum. Tvö þúsund! „Do you hear me?“ Spretthópur leikskólamála hefur samþykkt allar tillögur um fjölgun leikskólaplássa og nú munu því nýir leikskólar rísa upp um alla borg á mettíma - ferlinu flýtt með ýmsum brellibrögðum. Ég heyri svo vel ég heyri vanda skapast, ég heyri svo vel ég heyri loforð glatast, ég heyri svo vel ég heyri myglu myndast - heyri í rakaskemmdum, heyri í fúasveppum og sé Brákarborg..

Þorgerður þreytt en þakklát

Bara ef Togga Gunn hefði fengið aðeins betri og ítarlegri starfslýsingu með þessu blessaða utanríkisráðherra starfi þá hefði hún kannski ekki einu sinni þegið það. Vitið hvað það er mikið að gera eða?! Fullt sem er sko ekki einu sinni listað upp í ráðningarsamningnum eða neitt sko. Hún hafði ekki alveg gert ráð fyrir því. En á dögunum leit Þorgerður Katrín yfir farinn veg sem ráðherra síðustu mánuði og er full þakklætis yfir því að geta verið rödd þjóðarinnar á alþjóðavettvangi. Þú ert alveg ágæt Þorgerður..

Nýtt íþróttalið og nýr svipur

Íþróttafríkið og fótboltabullan Jón Gnarr hefur loksins loksins loksins fundið sér lið til að halda með í íslenskum íþróttum. Eftir 58 ára leit af rétta liðinu fann hann lið sem hjarta hans sagði að væri honum samboðið; Hér er nýjasti ÍR-ingurinn Jón Gnarr. Þvílík og önnur eins viðbót við neðra-Breiðholtið.
Spurning með hvort nýjasti svipurinn hafi fylgt með inngöngunni í ÍR eða sé einhver Stjána Bláa stæling?

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

Nýjasta þátt Spursmála má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert