Á þessum tíma fyrir 10 árum síðan var Daníel Rafn Guðmundsson í meðferð á Staðarfelli, að eigin sögn búinn að klúðra öllu og upplifði mikið vonleysi. Hann leitaði Guðs í litlu kirkjunni á Staðarfelli og fékk um leið að finna upplifun sem breytti öllu.
Daníel ræddi við Dagmál mbl.is um fangelsiskerfið á Íslandi og deildi eigin reynslu.
Segir hann alkóhólisma og spennufíkn hafa komið honum á stað sem hann vildi alls ekki vera á.
Það tók Daníel mörg ár að snúa við blaðinu og hljóp hann á margar hindranir og lenti í ótrúlegustu hlutum áður en hann fékk gæfu til þess, á Staðarfelli fyrir tíu árum.
„Það brenglast siðferðiskenndin, þegar maður er í þessum heimi,“ segir hann.
„Það er alveg klárt, manni fer að finnast hlutir eðlilegir sem að eru ekki eðlilegir.“