„Þá var alveg upplagt að nota stera“

Daníel Rafn Guðmundsson ræddi við Dag­mál mbl.is um fang­elsis­kerfið á Íslandi og deildi eig­in reynslu. Hann hefur verið edrú í 10 ár, allt frá því að hann leitaði Guðs í litlu kirkj­unni á Staðar­felli og fékk um leið að finna upp­lif­un sem breytti öllu.

„Náð Guðs er mögnuð – og náðin er ný á hverjum degi,“ segir Daníel og bætir við að náð Guðs sé í boði fyrir alla, „ég er ekkert sérstakur“.

Hann lýsir því að hafa upplifað svakalega andlega vakningu og að fíkn hafi verið tekin af honum á augabragði, þó að ferlið hafi svo tekið nokkra mánuði.

„Ég hætti að reykja, hætti að taka kvíðalyf, hætti að taka svefnlyf. Það bara fór allt kerfið í lag.“

Edrú vítahringurinn

Daníel hafði misnotað stera mikið og lýsir því að hafa fest sig margoft í edrú vítahring. Hann hafi farið í meðferð, eða hætt sjálfur, og þá hafi fyrsta hugsunin verið að fara í ræktina að rífa sig í gang. „Þá var alveg upplagt að nota stera. Þá var maður sneggri að þessu“.

Alkóhólistinn sé mikið fyrir skyndilausnir og hann hafi aldrei séð neitt rangt við þetta.

„Hringurinn minn var samt alltaf þannig að ég byrjaði að nota stera og þeir eru hugarfarsbreytandi. Þá fór maður í egóistann og allt þetta og maður í rauninni var orðinn bara eins og maður var í neyslu, edrú, á sterum. Svo tók maður bara kvíðalyf eða eitthvað, til þess að stemma sig niður,“ segir Daníel.

„Ég sá þetta aldrei, en Guð sýndi mér þetta.“

Eigin skilningur kom honum í tómt vesen

Segist hann á þeim tíma ekkert hafa skilið af hverju hann væri kominn aftur og aftur í sömu stöðu. Þar af leiðandi hafi hann verið í sjálfsvorkunn og farið að leita að blórabögglum í stað þess að leita inn á við.

Eftir að hafa leitað Guðs fyrir 10 árum síðan fór hann að sjá sinn hlut í öllu og taka ábyrgð.

„Þetta er ekki samfélaginu að kenna að ég sé svona. Þetta er ekki þessu að kenna eða hinu eða einhverju. Þetta er bara ég og ég þarf á Guði að halda, þarf á því að halda að gefast upp og leita í einhvern æðri skilning, heldur en minn skilning, af því að hann var búinn að koma mér í tómt vesen.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert