Ekki auglýstur ferðamannastaður

Hlauptungufoss er einn af þremur fossum í Brúará. Erlendur ferðamaður …
Hlauptungufoss er einn af þremur fossum í Brúará. Erlendur ferðamaður féll í ána skammt frá fossinum í gær og lést. mbl.is/

„Þetta er auðvitað bara sorglegt og leiðinlegt að þetta skuli vera að gerast ítrekað, þeir þurfa að setjast yfir þetta sem koma að öryggismálum,“ segir Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar í samtali við mbl.is um hörmulegt slys við Hlauptungufoss í Brúará í gær þegar erlendur ferðamaður, kona á fertugsaldri, féll í ána og týndi lífi sínu.

Aðspurð segir Ásta að hættumerkingar við ána hafi verið endurnýjaðar á síðustu árum, en þar sé þó ekki um neina formlega endurnýjun að ræða. „Þetta er náttúrulega einkaland og ekki auglýstur ferðamannastaður, fólk er bara þarna eins og það vill,“ segir hún, slysstaðurinn sé á landi sveitarfélagsins, en auðvitað vilji sveitarstjórnin gera það sem það getur til að tryggja öryggi fólks.

Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri segir fulltrúa sveitarfélagsins munu setjast yfir málið …
Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri segir fulltrúa sveitarfélagsins munu setjast yfir málið með lögreglu eftir hvítasunnuna. Ljósmynd/Aðsend

Gullni hringurinn fjölfarinn

„Við munum fara yfir þetta með lögreglunni núna eftir helgina, hvort hægt sé að merkja betur eða vekja betur athygli á hættunni. Hættulegir staðir eru úti um allt í íslenskri náttúru og ekki hægt að útiloka slys, en þegar þetta er að gerast ítrekað á svipuðum slóðum þarf að vekja skýrari athygli á því,“ heldur sveitarstjórinn áfram.

Ásta er spurð út í ferðamannastrauminn og segir hún hann liggja árið um kring um Bláskógabyggð. „Gullni hringurinn liggur um Bláskógabyggð og þar eru fjölsóttir ferðamannastaðir. Það eru ekki mörg ár síðan ferðaþjónustan var sumaratvinnugrein, en nú er þetta heilsársatvinnugrein algjörlega og veitinga- og gististaðir opnir allt árið,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka