Skammtímastæði orðið að geymslu

Enginn virðist virða hámarkstímann á bílastæðinu.
Enginn virðist virða hámarkstímann á bílastæðinu. mbl.is/KHJ

Íbúar á Völlunum í Hafnarfirði og stjórnendur Hótel Valla gagnrýna aðgerðarleysi Hafnarfjarðarbæjar vegna fjölda húsbíla, hjólhýsa, fellihýsa, vinnuvéla og bílhræja sem standa óhreyfð í marga mánuði á skammtímastæði við Hótel Velli.

Eiríkur Hilmarsson hótelstjóri segir þetta skaða ásýnd bæjarins og höfuðborgarsvæðisins, þar sem stæðið blasi við þegar keyrt er inn á höfuðborgarsvæðið frá Keflavík. Stæðið hefur verið merkt af Hafnarfjarðarbæ sem þriggja klukkustunda skammtímastæði en fæstir virða þær reglur. Lögreglan segir Hafnarfjarðarbæ bera ábyrgð á stöðunni sem skapast hefur. 

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert