Þingmaður segir launahækkunina til skammar

Jónína Björk Óskarsdóttir segir launahækkunina til háborinnar skammar.
Jónína Björk Óskarsdóttir segir launahækkunina til háborinnar skammar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jónína Björk Óskarsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir launahækkun þingmanna og ráðherra sem taka mun gildi um næstu mánaðamót vera til háborinnar skammar. 

Laun þing­manna og ráðherra, sem og fleiri ráðamanna, hækka um 5,6% um næstu mánaðamót.

Laun almenns launafólks hækkuðu til samanburðar um 3,5% eftir gerð seinustu kjarasamninga. Laun æðstu ráðamanna eru endurskoðuð á ári hverju og eru miðuð við meðaltal launahækkana almennra ríkisstarfsmanna. 

„Þetta er til háborinnar skammar að mínu mati og ég hef alltaf sagt það. Þetta er alltaf miðað við vísitölu og fer eftir ákveðnum prósentum og þetta er bara orðin geðveiki. Launamunurinn er bara að aukast endalaust,“ segir Jónína Björk í samtali við mbl.is.

Sagði hækkanirnar blauta tusku

Þingflokkur Flokks fólksins lagði fram þingsályktunartillögu í kjölfar sambærilegra launahækkana árið 2023 þar sem lagt var til að launahækkanir til æðstu ráðamanna yrði frestað.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, sagði í samtali við Ríkisútvarpið árið 2023 að launahækkanirnar væru blaut tuska í andlitið á þjóðinni.

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lagði fram frumvarp á seinasta ári þar sem launahækkanir þess árs fyrir æðstu ráðamenn voru takmarkaðar við 66 þúsund krónur. Hækkun þingfarakaups miðað við launahækkunina sem tekur gildi um mánaðamótin mun nema 85 þúsund krónum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert