Launahækkun í vasa þingmanna og ráðherra

Þingfararkaup hækkar um 85 þúsund krónur.
Þingfararkaup hækkar um 85 þúsund krónur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Laun þingmanna, ráðherra, forseta sem og æðstu embættismanna hækka um 5,6% um mánaðamótin næstkomandi.

Launin eru uppfærð árlega í samræmi við meðallaunahækkun almennra ríkisstarfsmanna.

Rúv greinir frá. 

Almennt þingfararkaup er nú rúmlega 1,6 milljón króna og hækkar það um 85 þúsund krónur á milli ára. Ráðherralaun er nú rúmar 2,6 milljónir króna, laun forsætisráðherra eru um 2,9 milljónir króna. Laun forseta Íslands eru nú um 4,25 milljónir króna. 

Venjulegt fólk súpi seyðið

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gagnrýnir launahækkunina harðlega á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. 

Gagnrýni Höllu beinist að því að laun ráðamanna hækki nú um 5,6% á grundvelli sjálfvirkrar hækkunar á meðan að almennt launafólk þurfi að sætta sig við 3,5% hækkun á grundvelli kjarasamnings.

Ráðamenn þurfa að sögn Höllu ekki að súpa seyðið af hækkandi verðlagi á sama hátt og venjulegt fólk en færsluna má sjá hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert