Hefja leikskóladvöl 29 mánaða gömul

Vonir eru bundnar við það að bjóða 18 mánaða börnum …
Vonir eru bundnar við það að bjóða 18 mánaða börnum leikskólapláss næsta vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Börn í Reykjanesbæ hefja leikskóladvöl á aldrinum 20-29 mánaða gömul en ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um meðalaldur. Stefnt er að því að bjóða yngri börnum pláss næsta vetur.

Þetta kemur fram í svari Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur, leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar, við fyrirspurn mbl.is.

„Í Reykjanesbæ er börnum boðið leikskólapláss á því ári sem þau verða tveggja ára. Algengast er að börnin byrji í leikskólanum í ágúst að loknu sumarleyfi. Þau geta því verið á aldursbilinu frá 20 mánaða til 29 mánaða, ávallt er farið eftir kennitölu við inntöku. Þessi skipan mála hefur verið hjá okkur síðustu tíu árin,“ segir í svari hennar.

Hefja dvöl fyrr í öðrum sveitarfélögum á suðvesturhorninu

Börn hefja því leikskóladvöl mun seinna í Reykjanesbæ en í öðrum stórum sveitarfélögum á suðvesturhorninu.

Í Kópavogi og Hafnarfirði eru yngstu börnin 14 mánaða sem fá inngöngu í leikskóla, yngstu börnum sem boðið hefur verið leikskólapláss í Garðabæ eru átta mánaða gömul og í Reykjavík eru börn 18 mánaða og eldri með boð um leikskólapláss.

Þá eru öll börn 12 mánaða og eldri í Mosfellsbæ með öruggt leikskólapláss.

Reiknar með að staðan batni næsta vetur

Til stendur þó að bæta stöðuna í Reykjanesbæ að sögn Ingibjargar.

„Á þessu ári erum við að opna tvo nýja leikskóla og reiknum með að geta farið að bjóða 18 mánaða gömlum börnum leikskólapláss næsta vetur,“ skrifar Ingibjörg.

„Varðandi mönnun hefur það gengið ágætlega og við erum bjartsýn á haustið þó að auðvitað viljum við alltaf fleiri leikskólakennara. Við höfum fengið aðeins af starfsfólki frá Grindavík.“

Ítrekað var spurt um meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl en engin svör bárust, að öðru leyti en að þau hefji dvöl á bilinu 20-29 mánaða gömul.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert