Heimur á heljarþröm: Samtal við Björn Bjarnason

Bókaklúbbur Spursmála kemur saman á Kjarval til þess að ræða Kúbudeiluna 1962. Þar mun Björn Bjarnason eiga samtal við Stefán Einar um bók Max Hastings um málið og hvernig sagan talar inn í samtímann.

Viðburðurinn fer fram í salnum Fantasíu á Vinnustofu Kjarvals við Austurvöll (gengið inn um Austurstræti).

Allir klúbbmeðlimir eru meira en velkomnir en skráning á fundinn fer fram hér.

Hann hefst stundvíslega kl. 20:00 en húsið opnar klukkustund fyrr, 19:00. Á Vinnustofunni er hægt að kaupa léttar veitingar á tilboðsverði.

Hægt að gæða sér á dönskum snittum

Bókaklúbburinn er auk þess í samstarfi við Jómfrúna í Lækjargötu og njóta klúbbmeðlimir sérkjara á þeim kvöldum þegar viðburðir eru. Nauðsynlegt er að bóka borð af þessu tilefni. Upplagt er að setjast niður um 18:00 og færa sig svo um sjö leytið yfir á Vinnustofu Kjarvals.

Ný bók í hverjum mánuði

Bókaklúbbur Spursmála hóf göngu sína í apríl síðastliðnum en markmið hans er að efla áhuga meðlma á samfélagsmálum með lestri góðra bóka. Í hverjum mánuði er kynnt ný bók til sögunnar sem síðan er fjallað um og tilraun gerð til þess að dýpka skilning þátttakenda á efni hennar og innihaldi.

Í apríl var fjallað um ævisögu Geirs H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra. Í maí var umfjöllunarefnið hin fyrrnefnda bók Max Hastings um Kúbudeiluna og nú hafa klúbbmeðlimir tekið til við að lesa hið magnaða verk 1984 eftir George Orwell.

Bókin er á sérstöku tilboðsverði af því tilefni og kostar aðeins 2.999 kr. í verslunum Pennans.

Hér er hægt að skrá sig í Bókaklúbb Spursmála. Þátttakan kostar ekkert en henni fylgja fríðindi af ýmsum toga, meðal annars aðgangur að viðburðum klúbbsins.

Klúbburinn er starfræktur í samstarfi við fjögur öflug fyrirtæki. Pennann, Samsung, Kerecis og Brim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert