Stefán E. Stefánsson
Skotin hafa gengið milli fyrrverandi lögreglustjórans á Suðurnesjum og ríkislögreglustjóra síðustu daga í kjölfar viðtals við þann fyrrnefnda í Spursmálum. Óæðri endinn á öpum kemur þar við sögu.
Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum kallar eftir afsögn Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra. Segir hann að hún hafi ekki sinnt vörnum ríkisins á landamærum Íslands meðan hún gegndi embætti því sem hann gegnir nú. Þá hafi hún heldur ekki sinnt þeirri skyldu sinni í núverandi embætti og sem fulltrúi í þjóðaröryggisráði.
Í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 um helgina brást Sigríður Björk við aðdróttunum Úlfars og sagði þá meðal annars:
„Það er nú bara eitthvað sem þarf að ræða við dómsmálaráðherra. Mér sýnist nú bara einn maður hafa sagt af sér og það er fyrrverandi lögreglustjóri.“
Í fyrrnefndu viðtali í Spursmálum hnykkti Úlfar á óánægju sinni með nokkuð stórkarlalegri samlíkingu. Heyra má hana í spilaranum hér að ofan.
„Eftir því sem apinn klifrar hærra upp í tréð, því betur sést í rassgatið á honum.“
Viðtalið við Úlfar má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Það hefst á mínútu 37:19.