Trump íhugar árás á Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveður Calgary í Canada en hann flýtti …
Donald Trump Bandaríkjaforseti kveður Calgary í Canada en hann flýtti brottför sinni frá leiðtogafundi G7-ríkjanna til að funda með þjóðaröryggisráðinu vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum. AFP/Chip Somodevilla

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur til skoðunar ýmsar sviðsmyndir er kemur að átökunum á milli Írans og Ísraels, þar á meðal hugsanlega árás Bandaríkjanna á Íran. Þetta herma heimildir Wall Street Journal eftir fund Trumps með þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna í Hvíta húsinu í gær.

Fyrir fundinn ræddi Trump símleiðis við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Fundur þjóðaröryggisráðsins stóð síðan yfir í um eina klukkustund og 20 mínútur. Ekki var gefin út tilkynning strax í kjölfar hans. Bandaríkjaher hefur aukið viðveru sína á austurhluta Miðjarðarhafs og Arabíuhafi, en varnarmálaráðuneytið hefur sagt það einungis vera í varnartilgangi.

Auðvelt skotmark

Snemma í gærmorgun lenti Trump í Bandaríkjunum eftir að hafa yfirgefið fund G7-ríkjanna í Kanada, sólarhring áður en fundinum lauk. Trump sagðist ekki vera að vinna að vopnahléi heldur einhverju „mun stærra“. Er Trump var beðinn um að útskýra nánar sagðist hann vilja „endalok, raunveruleg endalok, ekki vopnahlé“.

Síðar um daginn krafðist Trump „skilyrðislausrar uppgjafar“ Írana og varaði við því að Bandaríkin gætu auðveldlega ráðið æðsta leiðtoga landsins af dögum í færslum á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.

„Við vitum nákvæmlega hvar hinn svokallaði „æðsti leiðtogi“ er í felum. Hann er auðvelt skotmark, en hann er öruggur þar. Við ætlum ekki að taka hann úr umferð (drepa!), að minnsta kosti ekki í bili,“ sagði í færslu Trumps.

Í annarri færslu sagðist hann hafa fulla stjórn á lofthelgi Írans. „Íranar hafa gott loftvarnarkerfi en það stenst ekki samanburð við „dótið“ sem er hannað, framleitt og búið til í Bandaríkjunum. Enginn gerir þetta betur en gömlu góðu Bandaríkin.“

Kínverjar sökuðu Trump um að „hella olíu á eldinn“ í átökunum og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti sakaði Netanjahú um að vera „stærsta ógnin við öryggi Mið-Austurlanda“.

Lesa má nán­ar um málið á bls. 12 og 14 í Morg­un­blaðinbu og í Mogga-app­inu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert