Tveir ríkisþingmenn Minnesotaríkis í Bandaríkjunum voru skotnir á heimilum sínum í gær.
Melissa Hortman þingmaður og eiginmaður hennar voru skotin til bana.
John Hoffman þingmaður og kona hans voru skotin margoft á heimili sínu.
Tim Walz ríkisstjóri Minnesota segir árásina hafa verið aftöku af pólitísku ráði.
Walz greindi frá því á blaðamannafundi að John Hoffman og kona hans Yvette væru komin úr aðgerð. Hann sagðist reyna að vera bjartsýnn um að þau muni ná að lifa árásina af.
Lögreglan í Minnisota segir árásamanninn hafa klæðst lögreglufatnaði. Hann hafi náð að flýja vettvang eftir að hafa skotið á viðbragðsaðila sem komu fyrstir á vettvang.
Rannsókn stendur yfir og stendur nú yfir leit að manninum.