Hermann Nökkvi Gunnarsson
Ríkissjónvarp Írans greinir nú frá því að Hossein Salami, yfirmaður íranska byltingarvarðarins, hafi verið drepinn í árásum Ísraelshers á höfuðstöðvar íranska byltingarvarðarins í Teheran, höfuðborg Írans.
Staðbundnir fjölmiðlar greina frá eldi og reyk sem stígur upp frá höfuðstöðvunum.
Byltingarvörðurinn er vopnuð hersveit Írans og ein öflugasta stofnun landsins. Ekki er ljóst hversu margir háttsettir menn innan vébanda byltingarvarðarins hafa verið felldir.
Tehran moments ago 👇 pic.twitter.com/LE34huy2oD
— Dr. Eli David (@DrEliDavid) June 13, 2025