„Næstu skipulögðu árásir á Íran verða harðari“

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent frá sér yfirlýsingu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent frá sér yfirlýsingu. AFP

Ráðamenn víða um heim hafa sent frá sér yfirlýsingar vegna árásar Ísraela á Íran. Flestir hvetja til þess að ríkin haldi aftur af sér til þess að koma í veg fyrir frekari átök.

„Næstu skipulögðu árásir á Íran verða harðari,“ segir Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann segist hafa verið meðvitaður um að Ísrael ætlaði að ráðast á Íran áður en það gerðist. Í samtali við Fox News sagði hann að Íranir „mættu ekki eiga kjarnorkusprengjur“.

Trump vonast þó til þess að geta sest aftur við samningaborð ásamt leiðtogum Íran. 

Sérstakar áhyggjur af árásum á kjarnorkuinnviði

Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, biðlaði til beggja ríkja að halda aftur af frekari árásum til þess að koma í veg fyrir frekari átök.

Hann sagði það skapa aðstæður sem ekki mætti við á þessu svæði. Þar að auki lýsti hann sérstökum áhyggjum af árásum Ísraelsmanna á kjarnorkuinnviði Íran, þar sem að Íran og Bandaríkin standa í samningaviðræðum. 

Hættulegar aðstæður

Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir aðstæður í Mið-Austurlöndum hættulegar. Hún segir samskipti milli ríkjanna bestu leiðina og segist vera tilbúin og styðja við slíkar aðferðir til þess að koma í veg fyrir frekari átök.

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hvatti bæði Ísrael og Íran til þess að stíga til hliðar eins fljótt og auðið er. Hann bætti því við að átök þjóni engum í þessum heimshluta.

Lin Jian, talsmaður utanríkismála í Kína, segir kínversk yfirvöld áhyggjufull um þær alvarlegu afleiðingar sem árásir eins og þessi geti haft í för með sér. Hann hvetur þá sem málið varðar að ráðast í aðgerðir sem tryggja frið og koma í veg fyrir frekari átök. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert